Fagrahlíð lóð, 861

Fjarlægð/Seld - Eignin var 95 daga á skrá

Verð 220,0
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 6.8.2023
Fjarlægt 10.11.2023
Byggingarár
mbl.is


Fagratún við Fögruhlíð, Fljótshlíð - nýtt 39,2 ha svæði í skipulagsvinnu undir frístundabyggð með allt að 60 heilsárshúsum. Tilkomumikið útsýni. 90% fjármögnun á jörð & framkvæmdalán á byggingar.

Fagratún er c.a. 39,2 ha. landsvæði sem verið er að skipuleggja sem frístundabyggð. Í dag heitir landið Fagrahlíð lóð (F2194306, L164090), en nafninu verður breytt í Fagratún. Í dag eru landamerki jarðarinnar önnur, en verið er að vinna að breytingu lóðamarka, þ.a. allt landsvæði sem í dag tilheyrir jörðinni Fagrahlíð (F2193602, L164004) og liggur neðan Þjóðvegar, mun framvegis tilheyra Fagratúni.

 

Fljótshlíðin er rómuð sumarhúsaparadís vegna veðursældar, kyrrðar, náttúru og útsýnis. Þaðan sést til Vestmannaeyja, yfir Eyjafjallajökul og inn að Kötlu. 

 

Fagratún liggur neðan Þjóðvegar, um 7 km (6 mín. akstur) frá Hvolsvelli, um 102 km (80 mínútna akstur) frá Norðlingaholti, Reykjavík.  Landið inniheldur ræktuð tún og gróið land. Tilkomumikið útsýni. Falleg á rennur í gegnum landið. Stutt er í þjónustu og sund á Hvolsvelli. Gistiheimilið Fagrahlíð er í göngufæri. Þá eru 4 km í afþreyingu og þjónustu á Hellishólum. Örstutt (11 km) í næsta flugvöll, Múlakot

 

Skipulagsdrög gera ráð fyrir allt að 60 heilsárshúsum, auk sameignar. Landið verður selt sem ein heild, eftir að landamerkjum hefur verið breytt, nafni breytt, og deiliskipulag sem frístundabyggð samþykkt. Nýr eigandi mun þá geta hafist handa við lokaskipulag svæðisins og hafið framkvæmdir. 

 

IMIROX ehf. býður lögaðilum allt að 90% lán á þessa eign, auk þess sem IMIROX hefur áhuga á að lána til framkvæmda vegna uppbyggingar svæðisins. Frekari upplýsingar um fasteignalán IMIROX á www.imirox.is.

 

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir varðandi eignina á info@titaya.com eða hringið í síma 775-3993.
 

Þessi eign er í beinni sölu, þ.e. án milligönguaðila. Titaya ehf. er fasteignafélag og selur eingöngu eigin eignir.

            

Tilboðsgerð

Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð
Skiptir milljón þig máli? Fáðu tilboð í söluþóknunina á www.e-fasteignir.is
Hugbúnaðurinn sendir fyrirspurn á alla fasteignasala á Íslandi.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8