Engihjalli 9, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 30 daga á skrá
Verð |
31,9
|
Stærð |
62
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
513
|
Skráð |
8.7.2019 |
Fjarlægt |
7.8.2019 |
Byggingarár |
1978 |
mbl.is |
|
EIGNABORG kynnir:
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3 hæð í lyftuhúsi. Eldhús, bað og ofnar endurnýjað 2005. Stórar 17 fm svalir meðfram allri íbúðinni.
Mjög góð eign fyrir fyrstu kaup.
Upplýsingar gefur
Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@eignaborg.is og
Elín Alreðsdóttir aðstoðarm. fasteignasala í síma
8993090 og elin@eignaborg.is
Lýsing:
Íbúðin skiptist í rúmgott hol, stofu, eitt svefnherbergi, eldhús og baðherbergi. Stofan er um 20 fm rúmgóð björt og gengið úr stofu út á 17 fm svalir sem liggja meðfram íbúðinni sem snýr til vesturs. Leyfi fyrir svalalokun. Svefnherbergið er rúmgott rúmlega 13 fm með dyr út á svalir. Gott skápapláss er og eru skápar og innihurðir upprunalegar úr ljósum við aski eða sambærilegu. Eldhúsið er bjart með stórum opnanlegum glugga og borðkrók. Eldhúsinnréttingin var endurnýjuð 2005, hvít. Korkflísar á gólfi í eldhúsi. Baðherbergið var endurnýjað á sama tíma og er flísalagt að hluta, hvít innrétting og sturta. Á stofu, gangi og herbergi er gólfdúkur. Fram á gangi er sameiginlegt þvottahús fyrir þrjár íbúðir og gert ráð fyrir sérþvottavél fyrir hverja íbúð. Tvær lyftur eru í húsinu.
Til stendur að skipta um járn á þaki og teppaleggja sameign og eru þær framkvæmdir fjármagnaðar af seljanda.
Stutt í verslun, skóla og leikskóla, mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Upplýsingar gefur
Óskar Bergsson, löggiltur fasteignasali í síma 893 2499 og oskar@eignaborg.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2000,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.