Ljósheimar 14-18, 104
Fjarlægð/Seld - Eignin var 97 daga á skrá
Verð |
41,9
|
Stærð |
101
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
416
|
Skráð |
19.5.2018 |
Fjarlægt |
24.8.2018 |
Byggingarár |
1965 |
mbl.is |
|
Höfði fasteignasala kynnir:
Íbúðin er SELD - Með fyrirvara!
BJÖRT OG RÚMGÓÐ 4RA HERB. ENDAÍBÚÐ Á 2.HÆÐ Í LYFTUHÚSNÆÐI - 104 REYKJAVÍK!
Samkvæmt skráningu Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 100,7 fm.
Um er að ræða 9 hæða steinsteypt fjölbýlishús ásamt kjallara, en 56 íbúðir eru í húsinu. Tvær lyftur og eitt stigahús. Í kjallara eru sérgeymslur, þvottahús, sorpgeymslur og sameiginlegar geymslur, en á níundu hæð er einnig sameiginlegur salur. Íbúðin sjálf er skráð
97,3 fm og sér geymlsa í kjallara skráð
3,4 fm.
Gengið er inn í forstofu með fataskáp, við forstofuna er eitt svefnherbergið. Inn af forstofunni er opið hol, en eldhúsið er strax til vinstri en stofan lengra inn af holinu. Lengra inn af til hægri er svefnálma með tveimur svefnherbergjum og baðherberginu. Allir skápar í íbúðinni eru með rennihurðum.
Forstofa: Teppi
á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtutengi.
Svefnherbergin: Öll herbergin eru parketlögð og með góðum fataskápum.
Eldhús: Eldri innrétting með miklu skápaplássi (rennihurðir) og flísar á milli skápa, borðkrókur og parket á gólfi, Siemens bakarofn.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfum, björt og rúmgóð, gott pláss fyrir borðstofuna og útgengt út á vestur svalir.
Geymsla: Sér 3,4 fm geymsla fylgir í kjallara.
- Uppþvottavél, þvottavél, kæli- og frystiskápur geta mögulega fylgt.
- Búið er að endurnýja allt ofnakerfi í íbúðinni!
- Snyrtileg aðkoma og hjólastóla rampur. Sameign er öll til fyrirmyndar og rafmagnshurðaopnun er í anddyri.
- Öryggis eftirlitskerfi er við inngang og kjallara.
- Glerhlið hússins var endurnýjuð 2013, heitavatnslagnir eru endurnýjaðar í húsinu.
- Unnið er nú við að laga ytra byrgði hússins, en seljendur munu bera kostnað af samþykktum framkvæmdum við húsið m.v. afhendingardag.
- Ástandsskýrsla frá nóvember 2016 liggur fyrir.
Sameiginlegar vagn- og hjólageymslur ásamt sameiginlegum þvottahúsum og þurrkaðstöðu er í kjallara.
ATH! STUTT Í LEIK- OG GRUNNSKÓLA, ÁSAMT GÓÐUM VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTUKJARNA.
Allar nánari uppl. og skoðun veitir:
Jóhann Friðgeir, lgf GSM: 896-3038
e-mail:
johann@hofdi.is