Dalbrekka 23, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 99 daga á skrá
Verð |
49,9
|
Stærð |
115
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
433
|
Skráð |
15.3.2021 |
Fjarlægt |
22.6.2021 |
Byggingarár |
1984 |
mbl.is |
|
Falleg 115,2 fm. 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (aðkoma frá 2. hæð) í 6 eignarhluta fjöleignarhúsi. Til suðurs er 52 fm. einkalóð á svölum/þaki 2. hæðar og til norðurs eru 20 fm. útsýnissvalir til norðurs og vesturs. Aðkoma að 4 íbúðum hússins er frá Dalbrekku, en aðkoma að verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð er frá Nýbýlavegi. Sérinngangur, sérþvottahús, góðar stofur og þrjú svefnherbergi. Gott geymsluloft og sérgeymlsa við aðkomu á 2. hæð.
Nánari lýsing: Stigi fyrir tvær íbúðirnar á efstu hæð, aðkoma frá Dalbrekku. Sérinngangur á flísalagða forstofu með fatanengi. Af forstofu er gott þvottahús með hillum og glugga. Komið er á parketlagt hol/skála og þaðan er uppgangur á ágætt geymsluloft (ca. 1,6 m í mæni). Eldhúsið er á vinstri hönd, parketlagt með viðarinnréttingu, límtré á vinnuborðum, flísum á milli efri- og neðri skápa og borðkrók. Góður gluggi til suðurs úr eldhúsi. Stofan er rúmgóð og parketlögð og rúmar bæði stofu og borðstofu. Af svefnholi/gangi, eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Hjónaherbergið er parketlagt, með skápum og snyrtiborði. Útgangur á 20 fm. norður- og vestursvalir úr hjónaherbergi. Lítið dúklagt barnaherbergi. Parkeglagt barnaherbergi með skápum. Baðherbergið var standsett fyrir nokkrum árum, það er flísalagt, með sturtuklefa, veggnengdu salerni og innréttingu. Ágætir skápar á svefngangi. Sérgeymsla íbúðarinnar er við aðkomu á 2. hæð. Hún er ágætlega rúmgóð og með hillum.
Íbúðinni fylgja samtals rúmlega 70 fm. svalir. þ.e. 52 fm. svalir til suðurs sem merkt er sem einkalóð á teikningum og skilgreint sem sérafnotaflötur í eignaskiptasamningi. Þar er frábær og skjólgóð sólaðstaða. Einnig eru svo 20 fm. svalir meðfram norðurhlið hússins sem tilheyra íbúðinni.
- Sérinngangur.
- Gæludýr eru velkomin.
- Íbúðin getur verið laus við kaupsamning.
Allar nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lgf., bjorn@midborg.is eða í síma 894-7070.