Lautasmári 2, 201
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
39,9
|
Stærð |
132
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
302
|
Skráð |
4.11.2015 |
Fjarlægt |
18.11.2015 |
Byggingarár |
1997 |
mbl.is |
|
Domusnova kynnir
í einkasölu bjarta og fallega, vel skipulagða 104,6 fm 4ra herbergja íbúð ásamta 27,6 fm innibyggðum bílskúr.
Eignin er staðsett á
1. hæð í sex íbúða fjölbýlishúsi á besta stað í Kópavogi. Í íbúðinni eru
3 rúmgóð herbergi, björt og rúmgóð stofa og borðstofa,sjónvarpshol, stórar suðursvalir,eldhús með eldhúskrók, þvottahús innan íbúðar, sér geymsla í sameign og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Bílskúrinn er einkar rúmgóður, með gluggum á annarri hliðinni. Sjálfvirkur bílskúrshurðaropnari. Innangengt er úr bílskúrnum beint inn í stigagang hússins.
Öll þjónusta s.s. skólar, verslunarkjarnar, íþróttamiðstöðvar o.fl. eru í göngufæri í nágrenninu.
Nánari lýsing:
Komið er inn í
flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp með eikarhurðum.
Eldhús er með flísum á gólfi og fallegri eikarinnréttingu. Flísalagt á milli borðs og skápa. Rúmgóður borðkrókur.
Baðherbergið er flísalagt með ljósum flísum, með baðkari og sturtu. Opnanlegur gluggi.
Hjónaherbergið er stórt með fataskápum. Parket á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa eru rúmgóðar og bjartar. Góðir gluggar og svalir sem snúa suður.
Gengið er úr stofu út á stórar suðursvalir.
Gólfefni eru eikarparket og flísar.
Þvottahús er innan íbúðar með vegghillum.
Sérgeymsla er í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymsla.
Frábær eign fyrir fjölskyldufólk, þar sem allir skólar og verslanir eru í næsta nágrenni ásamt góðu samgöngukerfi.
EIGENDUR ERU AÐ LEITA AÐ MINNI EIGN Á JARÐHÆÐ Í SMÁRA - EÐA LINDAHVERFINU. Skipti tilvalin fyrir íbúðaeigendur sem
vilja stækka við sig.
Allar upplýsingar veitir Kristín Einarsdóttir í síma 894-3003 eða á kristin@domusnova.is og Einar Hannesson löggiltur fasteignasali á einar@domusnova.is –
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar eignir á skrá. Endilega hafðu sambandi ef þú vilt selja þína eign. Frítt verðmat.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.