Austurvegur 43, 630

Fjarlægð/Seld - Eignin var 111 dag á skrá

Verð 48,0
Stærð 121
Tegund Einbýli
Verð per fm 397
Skráð 6.10.2023
Fjarlægt 26.1.2024
Byggingarár 1940
mbl.is

Borgir s. 588-2030 kynna:

Húsið Jaðar, byggt 1926, á sunnanverði Hrísey í um 10 mín göngufjarlægð úr þorpinu.
Óhindruð sjávar- og fjallasýn nýtur frá húsinu um Eyjafjörðin.
Sökkull og kjallari hússins er steyptur en efri hæð er byggð úr timbri með bárujárnsklæðningu.
Gengið er inn í húsið af báðum hæðum.
Skjólgóður pallur er fyrir framan hús með heitum potti (hitaveita) og aðgengi í litla geymslu undir steyptum þrepum efri hæðar.

Á efri hæðinni er aðalinngagur hússins en komið er inn í anddyri með rúmgóðum skápi og kókosteppi á gólfi.
Frá anddyrinu tekur við gangur (einnig lagður kókosteppi) sem vísar í dúkalagt baðherbergi með sturtu, stofu og rúmgott eldhús með búri sem eru með korki á gólfum.
Borðstofa er opin inn í eldhús og stofu.
Frá eldhúsi er gengið niður á neðri hæð. Neðri hæð telur 3 góð svefnherbergi auk baðherbergis með þvottavél.
Veggir neðri hæðar og stigagangs er klæddir fallegum kúlupanel.
Gólfefni á stigagangi er kókosteppi en neðri hæðin sjálf er með yfirborðsmeðhöndluðu floti.
Í húsinu er ljósleiðari og er það kynnt upp með hefðbundnu ofnakerfi en hitaveita er í eyjunni ásamt ferskvatni.

 
Möguleiki er að fá hluta búslóðar með húsinu.
  
Hrísey hefur það allt. Kaupfélag, sundlaug, veitingastað, skóla og leikskóla.
Akstur frá Reykjavík að Árskógsströnd tæpar 5klst. en tæpur hálftími frá Akureyri.
Ferja siglir á tveggja tíma fresti frá morgni til kvölds og tekur siglingin tæpar 15mín.
Ekki er hægt að finna betra samfélag en í Hrísey.

Upplýsingar veitir Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is


 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24