Verð | 1.250,0 |
Stærð | 3.818 |
Tegund | Atv. |
Verð per fm | 327 |
Skráð | 18.12.2019 |
Fjarlægt | 24.12.2019 |
Byggingarár | 1981 |
mbl.is |
Um er að ræða steinsteypt atvinnuhúsnæði á þremur hæðum, auk þakrýmis. Efsta hæðin er inndregin. Viðbyggt við aðalhúsið er stálgrindarhús, sem var byggt árið 2001. Búið er að tengja þá byggingu við aðalhúsið. Húseignin stendur á hornlóð við Lyngháls að ofanverður og Krókháls að neðanverður, út við Hálsabraut. Aðkoma að húsinu er frá Lynghálsi, sem og Krókhálsi. Lóðin er vel frágengin og gróin. Gámaaðstaða er á lóðinni og öll bílastæði eru malbikuð á lóðinni. Lyfta er í húsinu, sem og stigi á milli hæða. Mikið útsýni er af hæðunum.
Innkeyrsludyr er inn í húsnæðið Krókhálsmegin og er mögulegt að fjölga þeim.
Öflugt loftræstikerfi er í húsinu og rafmagninntak, þá er vararafstöð í eigninni. Húsið er á steyptum burðarsúlum, sem auðveldar allar breytingar á innraskipulagi þess.
Eignin er vel staðsett, m.t.t. til stofnbrauta og með gott auglýsingagildi. Þá er aðkoman að lóðinni góð frá Hálsabraut. Húsið var á sínum tíma notað af Íslenskri erfðagreiningu.
Um er að ræða spennandi eign sem gæti hentað undir ýmiskonar starfsemi og mögulegt er að skipta henni upp.
Skipting : 1. hæð : 1.246,5 fm. prentsalir, lager vörumóttaka o.fl. 2. hæð : 1.230,2 fm. prentsalur, vinnusalur, matsalur, eldhús og skrifstofur. 3. hæð : 974,4 fm. skrifstofur. 72,0 fm. lyfturými Viðbygging : 294,8 fm. Samtals : 3.817,9 fm.
Lofthæð : 1. hæð : 380 cm. 2. hæð : 320 cm. 3. hæð : 280
Nánari upplýsingar gefur Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@miklaborg.is