Holtsvegur 25, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var 213 daga á skrá

Verð 79,9
Stærð 182
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 439
Skráð 29.1.2016
Fjarlægt 29.8.2016
Byggingarár 2014
mbl.is

Fasteignasalan TORG kynnir nýja 5 herbergja 181,8fm  glæsilega penthouse útsýnisíbúð, með um 70fm þaksvölum. Íbúðin afhendist fullbúin án gólfefna en hún er á fimmtu hæð merkt 0501. Íbúðin sjálf er skráð 169fm að stærð og að auki er geymsla merkt 0110 sem er skráð 12,8fm. Alls er því um að ræða 181,8fm eign samkv FMR upplýsingum. Um 43fm svalir á suður og vesturhlið.  Tvö bílastæði í bílastæðahúsi fylgir íbúðinni, merkt B01 og B09. Þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, aukabaðherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, þvottahús, stórar þaksvalir með óviðjafnanlegu útsýni, geymsla og hjólageymsla í sameign. Um er að ræða glæsilega nýja penthouse útsýnisíbúð á einum besta og fallegasta stað á höfuðborgarsvæðinu, Urriðaholti í Garðabæ. Fallegt og gott útsýni, stutt í verslun þjónustu og óspillta náttúru. Framkvæmdir við grunn-og leikskóla, sundlaug og íþróttamannvirki eru ákveðnar og áætlað að opna haustið 2016.

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Tómas sölufulltrúi í síma 895-9120 eða bjarni@fstorg.is
Holtsvegur 23-25 Urriðaholti í Garðabæ. 

Nánari lýsing:

Frágangur utanhúss  Húsið er staðsteypt á hefðbundinn hátt filt múrað og málað. Stigagangar eru einangraðir að utan og klæddir sléttu áli með innbrenndum lit. Gluggar eru málaðir samlímdir trégluggar, ísteyptir nema þar sem þeir koma í utanhúss klæðningu við stiga- og lyftuhús. Útihurðir eru lakkaðar og með 3ja punkta læsingu. Svalahandrið eru úr ryðfríu stáli og pólyhúðuð. Svalagólf skilast með steyptri yfirborðs áferð. Bílageymsla er sílanhúðuð sjónsteypa. Öll utanhúss lýsing fylgir með ásamt garðlýsingu.

Þak er staðsteypt, vatnsvarið með þremur lögum af eldsoðinn tjörupappa. Þar ofan á einangrun, jarðvegsfilt og sjávarmöl og holtagras er endanlegt yfirborð. Húsið verður málað ljósum litum með litbrigðum á stigagöngum og handriðum að vali arkitekta.
Lóð verður fullfrágengin, stoðveggir þar sem við á með steyptri áferð. Núverandi klöpp verður hreinsuð og látin halda sér eins og kostur er. Bílastæði og aðreinar verða malbikaðar og gangstígar hellulagðir. Lóð verður tyrfð. Lóð yfir bílageymslu verður hellulögð, tyrfð holtagrasi og sjávarmöl þar sem við á.
Sameign: Anddyri verða flísalögð, önnur gólf og stigar í stigagöngum verða teppalögð slitsterku teppi. Handrið verða máluð. Í anddyri verður dyrasími og póstkassar verða uppsettir. Rúmgóðar og vandaðar lyftur eru í báðum stigahúsum.

Bílageymsla, veggir og loft með steyptri áferð ómeðhöndluð, gólf vélslípuð. Geymslur, tæknirými og geymslugangar verða frágengin á eftirfarandi hátt:

Léttir veggir verða ýmist tré- eða gipsveggir með einfaldri klæðning með loftun við gólf og loft. Aðrir veggir verða með steyptri áferð, meðhöndlaðir (rykbundið glært). Gólf verða lökkuð og loft verða með steyptri áferð.
Íbúðir verða fullfrágengnar fyrir utan gólfefni samkvæmt. neðangreindu, þó verða gólf baðherbergja og þvottahúsa flísalögð.

Aukin lofthæð er í öllum íbúðum ca 280 cm. Allar gólfplötur eru að lágmarki 22 cm þykkar sem veitir betri hljóðeinangrun milli hæða. Útveggir eru einangraðir að innan síðan tvöföld grind klædd tvöföldu gipslagi til að auka hljóðvist innan íbúða. Allir milliveggir eru klæddir fjórföldu gipslagi á blikkgrind þ.e 2+2. Rakahelt gips er í votrýmum. Íbúðir verða málaðar ljósum lit. Í öllum íbúðum verður mynddyrasími.
Hurðir verða yfirfelldar spónlagðar með eik af vandaðri gerð og með yfirhæð (210 cm).
Innréttingar Fataskápar og baðinnréttingar eru sérsmíðaðar frá Parka ehf. Eldhúsinnréttingar eru frá Innex, borðplötur plastlagðar með yfirfelldum vask og einnar handar blöndunartæki (sveiflu). Ekki er hægt að gera breytingar eftir að búið er að panta eða innrétta viðkomandi íbúð.
Raftæki Helluborð, vifta og ofn eru af vandaðri gerð frá AEG eða sambærilegt.

Vatnsalerni, vaskar og blöndunartæki: Vatnssalerni verða upphengd af vandaðri gerð, vaskar verða felldir í borð. Blöndunartæki eru einna handar af vandaðri gerð. Hitastýrð tæki á baðherbergjum með öryggisvörn.
Ofnakerfi Hefðbundið hitakerfi eru í íbúðum með vönduðum hitastillum (Danfoss eða sambærilegt).
Flísalögn Flísar verða af vandaðri gerð, ílangar, ljósar á veggum og dökkar á gólfum.
Umhverfismál  Mikil áhersla er lögð á allar íbúðir njóti mikils útsýnis til suðurs og vestur. Skipulagshöfundar svæðisins í samstarfi við Urriðaholt ehf hafa lagt mikla áherslu á umhverfisvænan byggingarmáta og eru enginn pvc rör notuð í grunnlagnir og engin galvanaseruð efni í t.d handrið.  Málning er blýlaus. Vatnsgildrur eru í frárennsli húsa sem síar frárennslið svo hægt sé að hleypa því aftur í umhverfið.
Annað Vélræn loftræsting er í lokuðum rýmum. Læsanlegur lyfjaskápur er í öllum íbúðum. Slökkvitæki og reykskynjarar eru þar sem við á samkvæmt eldvarnakröfum. Smávægilegt misræmi getur verið á málum frá samþykktum teikningum vegna veggþykkta og þess háttar.
Hönnun Aðalhönnuðir eru Úti og Inni arkitektar ehf, burðarþols og lagnahönnun er hjá Hnit ehf verkfræðistofu og raflagnahönnun hjá Verkhönnun ehf.  

Allar nánari upplýsingar veitir Bjarni Tómas sölufulltrúi í síma 895-9120 eða bjarni@fstorg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23