Skólabraut 12, 250

Fjarlægð/Seld - Eignin var 3 daga á skrá

Verð 66,9
Stærð 169
Tegund Einbýli
Verð per fm 397
Skráð 3.7.2023
Fjarlægt 7.7.2023
Byggingarár 1968
mbl.is

Stuðlaberg Fasteignasala kynnir 168m² einbýlishús, þar af er sambyggður bílskúr um 29m².   
Húsið er vel skipulagt með 4 svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og eldhúsi sem mynda eina heild. 

**Eignin getur verið laus 1.september**

**Vinsamlegast bókið skoðun hjá Magnúsi Þóri í síma 8951427 eða í tölvupósti á magnus@studlaberg.is**


Nánari lýsing:

Forstofa flísalögð með skáp.
Gestasalerni er flísalagt með sturtu og innréttingu.
Eldhús með endurnýjaðri innréttingu og nýlegum tækjum.
Stofan er rúmgóð og björt með útgengt út á nýlegan sólpall þar sem er heitur pottur.
Barnaherbergin eru þrjú og með fataskápum í tveimur.
Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og snyrtilegri innréttingu.
Þvottahús er flísalagt með góðri geymslu innaf. 
Gólfefni eru flísar og harðparket.
Miðstöðvarlögn í húsinu hefur verið endurnýjuð að sögn seljenda.
Húsið hefur verið viðgert og málað að utan og lítur mjög vel út.
Gler í húsinu hefur verið endurnýjað að hluta.
Bílskúr er sérbyggður hægra megin við húsið, gengið er inn í bílskúr að framanverðu í gegnum geymslu.


Framkvæmdir á síðustu árum:
2016 var skipt um allar lagnir að ofnum og skipt um ofna í herbergjum og stóra baði. Þá var líka skipt um gólfefni í stofu, herbergjum og stóra baði. Einnig smíðuð verönd.
2019 var eldhúsið endurnýjað frá grunni.
2020 var settur heitur pottur með blöndunartækjum og loki, einnig skipt um gólfefni á forstofugangi.
2017-2020 voru settir upp innbyggðir fataskápar í forstofugangi, tölvuherbergi, hjónaherbergi, og í gráa herberginu.


Vel skipulagt og staðsett einbýlishús í Garðinum, en þar er íþróttaaðstaða til fyrirmyndar, flott sundlaug og íþróttahús.
Fimm mínútna akstur til Keflavíkur.


Allar nánari upplýsingar veitir:

Magnús Þórir Matthíasson
Aðstoðarm.fasteignasala
S. 895-1427 eða 420-4000
magnus@studlaberg.is

Guðlaugur H. Guðlaugsson
Lögg. fasteignasali
S: 420-4000
laugi@studlaberg.is

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28