Mávabraut 9, 230
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá
Verð |
52,0
|
Stærð |
112
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
466
|
Skráð |
13.2.2024 |
Fjarlægt |
15.2.2024 |
Byggingarár |
1976 |
mbl.is |
|
Remax og Kristbjörg Inga Valsdóttir lgf. kynna í einkasölu Mávabraut 9, 230 ReykjanesbæVelkomin á opið hús sunnudaginn 18. febrúar frá 15:00-15:30Einstaklega falleg og björt fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í steyptu fjölbýlishúsi. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá 111,5 m2, þar af er sérgeymsla sem er 5,6 m2.Eignin er á mjög góðum stað miðsvæðis í Reykjanesbæ. Í göngufæri er leik-, grunn-, framhaldskóli og sundmiðstöðin Vatnaveröld. Góð útivistar og íþróttaaðstaða er einnig í göngufæri. Stutt er í helstu verslanir og ýmsa aðra þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Kristbjörg Inga Valsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 776-2924 / ingavalsdottir@remax.isSMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3DSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp með speglum á.
Gestasalerni er
með flísum á gólfi, lítilli svartri innréttingu frá Ikea og upphengdu salerni.
Eldhús er með parketi á gólfi. Þar er hvít stílhrein innrétting með innbyggðum ísskap/frysti, uppþvottavél, span helluborði og svörtum háf.
Stofa er með parketi á gólfi.
Herbergin þrjú eru með parketi á gólfum og rúmgóðir fataskápar eru í þeim öllum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Dökk innrétting, hankdklæðaofn, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Þvottahús er með aðgengi frá forstofu, með flísum á gólfi. Hvít innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gott skápapláss og vel nýtt rými.
Sér geymsla er staðsett í kjallara.
Gengið er út á
svalir frá einu svefnherbergjanna og snúa þær í suðvestur.
Eldhús, baðherbergi og þvottahús endurnýjað 2018.
Innihurðir, gólfefni og fataskápar endurnýjaðir 2018.
Rafmagn, tafla, rofar og tenglar endurnýjaðir 2018
Gluggar endurnýjaðir 2021.
Þak endurnýjað 2020.
Búið er að lagfæra sprungur utan á hús og mála port. Einnig var bílaplanið tekið í gegn 2022.
Neysluvatnslagnir endurnýjaðar árið 2008.
Nánari upplýsingar gefur Kristbjörg Inga Valsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 776-2924 / ingavalsdottir@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Fagljósmyndari tekur allar ljósmyndir og svo er innifalin 3D myndataka á eignum.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Remax því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.