Skipholt 50, 105
Fjarlægð/Seld - Eignin var 4 daga á skrá
Verð |
73,9
|
Stærð |
162
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
456
|
Skráð |
29.7.2019 |
Fjarlægt |
2.8.2019 |
Byggingarár |
1985 |
mbl.is |
|
Lind fasteignasala ehf. kynnir í einkasölu glæsilega innréttaða íbúð við Skipholt 50 í Reykjavík. Eignin er skráð 162.2 fm, þar af er 29.6 fm bílskúr.
BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA: 6189999
Lýsing:
Glæsilega nýlega innréttuð 3ja herbergja íbúð við Skipholt í Reykjavík. Innanhússhönnun var í höndum innhúshönnuðarins Leifs Welding og innanhúsarkitektsins Berglindar Berndsen. Lýsing og hönnun ehf. sá um lýsingarhönnun.
Nánar lýsing:
Komið er inn í rúmgott anddyri, þar eru góðir fataskápar. Tvö svefnherbergi eru inn af anddyri/svefnherbergisgangi. Glæsilegt baðherbergi með steyptum vaski og flísum á gólfi og veggjum, innbyggð vönduð blöndunartæki. Þvottahús er innan íbúðar en inn af þvottahúsi er geymsla/fataherbergi. Eldhús er glæsilegt með eyju og góðu skápaplássi og vönduðum tækjum. Rúmgóð stofa og borðsstofa. Allar innréttingar og hurðir eru sérsmíðaðar af Fagus úr reyktri eik. Gólfefni er úr vandaðri eik, flísar á baðherbergi og þvottahúsi eru frá Agli Árnasyni. Borðplötur í eldhúsi og baðherbergi eru heilsteyptar frá Loftorku. Miele ofn og spanhelluborð eru í eldhúsi frá Eirvík. Hansa Grohe innbyggð blöndunartæki frá Ísleifi Jónssyni. Fullkomin hita og ljósastýring frá Instabuz. Aukin lofthæð er í allri íbúðinni og innihurðir eru hærri en venjulega.
Bílskúr er í dag innréttaður sem vinnustofa sem auðvelt er að breyta honum í studió íbúð eða aftur í bílskúr, heitt og kalt vatn er til staðar einnig salerni.
Í húsinu eru 4 íbúðir, 2 á hverri hæð. Íbúðin er mjög vel staðsett og í göngufjarlægð frá miðbænum. Fyrir utan einkabílastæði eru næg bílastæði á lóðinni.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Kristján Sigurðsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6189999, tölvupóstur halldor@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.