Davíðshagi 201, 600

Fjarlægð/Seld - Eignin var 533 daga á skrá

Verð 43,7
Stærð 107
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 408
Skráð 17.7.2018
Fjarlægt 1.1.2020
Byggingarár 2018
mbl.is

Davíðshagi 4 íbúð 201 - 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð í fjölbýli með lyftu í Naustahverfi. 
Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Afhendingartími íbúðar er Október 2018 og stæði í bílageymslu er áætlað í desember 2018

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö barnarherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf. 
Sér geymsla er í kjallara og stæði í bílageymslu.
Steyptar 7,2 m² suður svalir. 


Innréttingar og skápar: Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti ýmist með eikaráferð eða hvítt. Innréttingar eru í eldhúsi og á baðherbergi. Skápar koma þar sem teikningar sýna. Harðplast er á borðplötum. Með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn, keramik helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi: Flísar koma á veggi og gólf í sturtum baðherbergja. Aðrir veggfletir baðherbergja eru málaðir. Á baðherbergi innrétting með handlaug en einnig innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
 
Hurðir: Yfirborð innihurða er úr eikarharðplasti.
Gólfefni íbúða er rakahelt og hljóðdempandi vinyl-harðparket. Gólf stigauppgöngu er steinsteypt. Gólf í sameign og geymslum í kjallara er steinsteypt og lakkað.
Loft: Loft alrýma og svefnherbergja íbúða eru klædd hljóðdempuðum loftaplötum. Önnur loft íbúða og sameignar eru sandspörtluð og máluð.
 
Hreinlætistæki: Öll blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem teikningar sýna. Í baðherbergi er sturta.
Loftræsing: Sérstakur vélrænn loftskiptibúnaður með tilheyrandi loftræsilögnum tilheyrir hverri íbúð þar sem ferskt loft er hitað upp með útkastslofti. Rekstrakostnaður íbúða lækkar verulega og einnig minnkar ryk innan íbúðar verulega með tilkomu þessa kerfis og heilnæmi andrúmslofts íbúðar eykst
 
Mynd-dyrasími er í hverri íbúð.
Pípulögn: Hitalagnir eru í gólfi íbúða. Neysluvatnslagnir eru lagðar skv. verkfræðiteikningum.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin, ljósakúplar á baði og þvottahúsi. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Útiljós við innganga verða frágengin. Uppsettur reykskynjari fylgir hverri íbúð.
 
Frágangur utanhúss
Húsið er klætt að utan með báruðu stáli og smábáru úr áli.
Þak: Steypt loftaplata er fulleinangruð undir þakdúk og hulin með möl
Svalir: Svalagólf steypt. Handrið er gert úr stálprófílum. Prófílarnir eru klæddir alucobond-klæðningu. Hönnun handriðs og svala er með þeim hætti að auðvelt er að koma fyrir svalalokun í framtíðinni.
Lóð: Stéttar við aðalinngang eru steyptar og malbikaðar með hitalögnum að hluta skv. teikningu. Lóð er þökulögð í samræmi við fyrirliggjandi lóðarteikningar og bílaplön malbikuð.

Byggingarverktaki: SS Byggir ehf.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19