Verð | 8,9 |
Stærð | 64 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 138 |
Skráð | 20.6.2021 |
Fjarlægt | 1.7.2022 |
Byggingarár | 1961 |
mbl.is |
ATH ATH. KOMIÐ ER TILBOÐ Í EIGNINA SEM KOMIÐ ER Í GREIÐSLUMATSFERLI til 8. júní 2022
Valhöll fasteignasala sími 588 4477 kynnir:Til sölu kjallaraíbúð við Bæjartúni 7, Ólafsvík, við knattspyrnuvöllinn í Ólafsvík.
Íbúðin er 64,4 fm og skiptist í forstofu, wc með sturtu, hol, tvö herbergi, eldhús og stofu. Þá er geymsla og þvottahús í íbúðinni. Á forstofu, baðherbergi og eldhúsi eru flísar en á stofu og herbergjum er parket. Þetta er þokkaleg íbúð á góðum stað í bænum og stutt er í alla þjónustu ma sund, íþróttahús verslun og fl. Stór lóð er við húsið. Íbúðin er hituð með vatnsofnum. Klæðning er á suðurhlið hússins. Málningar og smá viðgerða er þörf á húsinu að utan. Íbúðin er í góðri leigu eins og er. Hlutur neðri eignar í húsinu er 27,35%. Samkv eiganda er hitakostnaður um kr 15000 á mánuði. Lán hvílir á eigninni frá Landsbankanum sem stendur kr 7,360 millj, afborgun kr 45,000 pr mán. Fasteignagjöld 2022 eru kr 176025.- Ásett verð kr 8,9millj.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.