Verð | 213,0 |
Stærð | 174 |
Tegund | Fjölbýli |
Verð per fm | 1.228 |
Skráð | 10.3.2022 |
Fjarlægt | 18.3.2022 |
Byggingarár | 2015 |
mbl.is |
Nánari lýsing
Anddyri Vatnsstígs 20-22 er rúmt og sérlega aðlaðandi en það endurspeglar gæði húss með fallegum listaverkum ásamt sófa fyrir íbúa og gesti þeirra.
Komið er inn í anddyri með fataskáp. Tveir herbergjagangar með stórum skápum sem eru með rennihurðum. Tvö svefnherbergi í sitthvorum enda íbúðar með fataskápum. Annað herbergið er með útgengi á suðursvalir og hitt herbergið með útsýnisglugga með Esjuna í aðalhlutverki. Baðherbergin eru tvö, annars vegar stórt baðherbergi með stórum skápum undir tveimur handlaugum og speglaskáp þar fyrir ofan. Baðkar með sturtu flísalagt gólf og veggir upp í loft. Við hinn herbergjaganginn er minna baðherbergi með sturtu, eins flísar og á stærra baðherberginu. Þvottahús er flísalagt og með góðri innréttingu.
Alrýmið er einstaklega glæsilegt með stórri stofu þar sem áðurnefnt útsýni blasir við. Eldhúsið er með miklu skápaplássi, stein í borðplötum og tækjum frá Miele. Eyja er með helluborði og hangandi háf þar yfir.
Útengt er á 12 fm yfirbyggðar svalir frá eldhúshlutanum sem er með viðarklæddu gólfi. Mjög gott útsýni til miðbæjar, Bláfjalla og Perlunnar.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar S. Jónsson lögg. fasteignasali í síma 899-5856 eða gunnar@miklaborg.is og Jón Rafn lögg. fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is