Borgartún 24 - íb 208, 105

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 59,9
Stærð 61
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 976
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Eignamiðlun kynnir:

Bókið skoðun. Sýnum samdægurs. Glæsilegar nýjar íbúðir í vel staðsettu fjölbýlishúsi í Borgartúni í Reykjavík. Íbúðir afhendast fullbúnar með vönduðum innréttingum, innbyggðum eldhústækjum og gólfefnum. Til afhendingar við kaupsamning.
 
Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 208 í Borgartúni 24b, íbúð merkt 01-0208, F2518337. 2ja herbergja íbúð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 61,4 fm, þar af er íbúðarrými 48,3 fm og sérgeymsla er 13,1 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í alrými, svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla fylgir íbúðinni. Svalir snúa í vestur.

 Sölumaður: Gunnar Bergmann Jónsson sími: 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is

* Stærðir íbúða eru frá 52,8-191,6 fm. Geymsla fylgir öllum íbúðum. 
* Frábær staðsetning í grónu hverfi. Steinsnar frá miðbænum og Laugardalnum. 
* Frábært útsýni er úr mörgum íbúðum. 
 
Borgartún 24 er glæsilegt 7 hæða fjölbýlishús með 64 íbúðum á 2.-7 hæð og verslunar- og þjónusturýmum á 1. hæð í einu helsta viðskiptahverfi borgarinnar. Í Borgartúni er blönduð byggð íbúða, skrifstofu-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Frábær staðsetning í næsta nágrenni við stóra vinnustaði og alla helstu þjónustu, í göngufæri frá miðbænum og Laugardalnum. Byggingin er byggð utan um sameiginlegan inngarð. Á 4. hæð er einnig sameiginlegur þakgarður, á 6. hæð er sameiginlegur þakgarður og á 7. hæð eru sameiginlegar þaksvalir.
 
Frágangur íbúða að innan: Vandaðar þýskar innréttingar frá Nobilia í eldhúsi, baði og herbergjum (söluaðili er GKS). Íbúðirnar afhendast fullbúnar með tækjum og gólfefnum. Eldhúsraftæki koma frá Siemens, ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð. Harðparket á gólfum herbergja og í alrými. Gólf á baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Hreinlætistæki frá Grohe.  
Frágangur utanhúss: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með viðhaldsléttri álklæðningu eða sambærilegu efni. Timbur/ál gluggar. Lóð og bílastæði: Sameiginlegur inngarður er á 2. hæð og sameiginlegar þaksvalir eru á 4. hæð. Í bílakjallara eru 39 bílastæði, þar af 4 fyrir hreyfihamlaða, og 30 bílastæði eru á lóð. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða er einnig á plani við aðalinngang.
Hiti og rafmagn: Hiti er sameiginlegur og reiknast samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir hverja íbúð. 
Skipulagsgjald: Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati) til sýslumanns. 
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28