Laugavegur 98, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 54,9
Stærð 59
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 929
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 1936
mbl.is

Gimli fasteignasala kynnir:  Laugavegur 98, 101 Reykjavík.

Vel staðsett 54 fm íbúð á 3. hæð ásamt 3,5 fm geymslu í kjallara, samtals 59,1 fm. 
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Sérgeymsla er í sameign ásamt tveimur sameiginlegum geymslum, sameiginlegu þvottahúsi og hjólageymslu.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fatahengi og parketi á gólfi. Eldhúsið snýr í suður með ágætis innréttingu. Rúmgóð parketlögð stofa með tvöföldum gluggum sem snúa að Laugavegi. Svefnherbergið er rúmgott og snýr út í bakgarð, parketlagt með góðum fataskápum. Baðherbergið er flísalagt með baðkari. Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign. Sameiginlegt þvottahús er í kjallara ásamt hjólageymslu og tveimur stórum sameiginleg geymslum. Hægt er að ganga út úr sameign í kjallara í bakgarð. Á baklóð er sameiginlegur sólpallur fyrir húsið. Búið er að hreinsa og fóðra frárennslislagnir. Ný rafmagnstafla og hitagrind í sameign. Samkvæmt seljanda var þak endurnýjað 2013. Ástandskýrsla liggur fyrir sem unnin var 2023.
 
Hér gefst tækifæri til að eignast góða íbúð í göngufæri við mikla þjónustu og afþreyingu í miðborginni.

Íbúðin er í dag leigð út í skammtímaleigu og er með rekstrarleyfi með góðar leigutekjur.

Eignin Laugavegur 98 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-5518, birt stærð 59.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veita: Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali í síma 698-1164, dr@gimli.is eða Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse löggiltur fasteignasali í síma, 792-7576, gudmunda@gimli.is

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12