Laufásvegur 17, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 5 daga á skrá

Verð 92,9
Stærð 102
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 909
Skráð 18.6.2022
Fjarlægt 24.6.2022
Byggingarár 1956
mbl.is

Ólafia Ólafsdóttir lgf., og Hús fasteignasala kynna eignina Laufásvegur 17, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-03, fastanúmer 227-1707 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignar réttindi. Íbúðin er 2. herb. íbúð á 1. hæð hússins (01-03).  Birt stærð er 78,1 m2 auk 24,1 m2 óskráðs rýmis sem er á lóð Laufásvegar 19.  
Raunstærð íbúðarinnar er 78.1m2 auk 24.1meða samtals 102.2m2.  
Bílastæði, í óskiptri sameign, eru staðsett við enda hússins.  Íbúðin getur verið laus fljótlega.
Íbúðin samanstendur af forstofu, alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi, þvottarými með geymslu fyrir innan, innri stofu, og tveimur svefnherbergjum, geymslu og sameiginlegri hjólageymslu.  
Forstofa:  sérinngangur inn í forstofu.
Alrými:  stofa, borðstofa og opið eldhús.
Baðherbergi:  með innréttingu, salerni og sturtuklefa.  
Þvottarými: innrétting með vaski og þvottavél.  Inngengt er úr þvottarými í rúmgóða geymslu. 
Innri stofa og/eða sjónvarpshol: rúmgóð stofa með þakglugga. 
Svefnherbergi: 
svefnherbergin eru tvö talsins. Svefnherbergin tilheyra óskráða hlutanum.  
Geymsla: innangengt er í litla sérgeymsl og þaðan í hjólageymslu.  Úr hjólageymslu er útgengt út að bilaplan. 

Kvaðir og önnur eignarbönd: 
Eignaskiptayfirlýsing, þinglýst skjal nr. 411-S-000339/2004
Eignaskiptayfirlýsing, þinglýst skjal nr. E-0047232021 vegna Laufásvegar 19

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi miðast við hlutfall af heildarfasteignamati  - almennt 0,8 % , 04% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Ólafía Ólafsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8988242, tölvupóstur ola@husfasteign.is.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18