Klapparstígur 29, 101

Verð Tilboð
Stærð 238
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 6.5.2024
Fjarlægt
Byggingarár 1927
mbl.is 1261254

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN OG SVEINN EYLAND LGF. KYNNA Í EINKASÖLU:
Um er að ræða töluvert mikið endurnýjað 237.9 fm verslunarhúsnæði á jarðhæð á frábærum stað við í þessu fallega húsi við Klapparstíg, húseignin nýlega öll verið endurnýjuð að utan.
Hæðinni er skipt upp í tvö verslunarrými í dag sem eru bæði í útleigu.
Auðvelt væri að opna á milli og sameina, húsnæði sem að býður uppá mikla möguleika.
Mikil lofthæð og karakter í húsnæði. Tveir inngangar eru í húsnæði og er afgirt port til austurs og er útgengt á tvo vegu út í það.
HÆGT AÐ TAKA YFIR EIGN VIÐ KAUPSAMNING OG YFIRTAKA LEIGUSAMNINGA.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Húsnæðið skiptist í:
Í stærra rými sem er verslunarrými og skrifstofa/lager bakatil með útgengi út í austur port, starfsmannaaðstaða/kaffistofa og salerni.
Í minna rými er rekið gallerí/verslun, bakatil er kaffistofa með nýlegri eldhúsinnréttingu, salerni og er útgengt þaðan út í austur port,
Í kjallara er gott geymslu/lagerrrými með glugga og er gengið í það úr portinu.
Afgirt verönd/port bakvið hús og er útgengt í það úr húsnæðinu og eins úr sameignarhluta..
Gott gluggapláss og mikil umferð er framhjá húsnæðinu sem gefur því gott auglýingargildi.
Töluverð endurnýjun og nýjar byggingar hafa risið á þessu svæði á s.l árum og eins á að endurbæta húseign að utan í sumar.
Terazzo slípaður steinn á gólfum.


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16