Hverfisgata 33, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 118 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 825
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 17.12.2021
Fjarlægt 15.4.2022
Byggingarár 1965
mbl.is

 

*** Heil húseign í hjarta borgarinnar ***

Heimili fasteignasala kynnir vel skipulagða 825,1 fm. þjónustu- og skrifstofubyggingu í fullum rekstri í 101 Reykjavík. 
Hverfisgata 33, steinhús, klætt utan með lituðu áli.  3 hæðir og kjallari.  Húsið er til afhendingar fljótlega á nýju ári.  Efri hæðir væru þá tómar en leigusamningur er í gildi um jarðhæð og kjallara.  Staðsetning er hentug fyrir margsskonar starfssemi - bílastæðahús handan götunnar. 

Um tvo eignarhluta er að ræða; 
Efri hæðir (fastanr. 223-9638) 465,6fm. 

Á 1. hæð er sérinngangur og 18 fm skrifstofurými, auk salernisaðstöðu með aðgengi fyrir fatlaða.  
Á 2. hæð eru tvær góðar skrifstofur, rúmt og bjart opið vinnurými og stórt fundarherbergi með glerhurðum og stórum gluggum.  Einnig ljósritunaraðstaða, geymsla og eldtraust skjalageymsla.  Þá er á hæðinni salerni og eldhús með nýlegri innréttingu.  Steinteppi og parket á gólfum.  Tölvulagnir í stokkum og kerfisloft á hæðinni.

Á 3. hæð hússins er rúmgóður og einknar hlýlegur salur, undir súð, með skemmtilegum kvistgluggum og paraketi á gólfi.  Snyrtingar og lítið eldhús eru á hæðinni.  Lagnir og tengibox í gólfi. Suður svalir fyrir enda rýmisins.  Hæðin hentar m.a. vel sem opið vinnurými, til námskeiðahalds, fyrir smærri eða stærri mótttökur o.fl. Auðveldlega má breyta skipulagi á öllum hæðum, þar sem aðeins eru léttir veggir.  Í kjallara eru tvær sérgeymslur auk sameiginlegs rýmis.

Neðri hæðir (fastanr. 200-3057) jarðhæð og kjallari 359,5 fm.
Á jarðhæð er rekinn veitingastaður og bar með sér inngangi en í kjallara eru eldhús, geymslur og skild aðstaða, auk sameiginlegs rýmis.  Eignin er í útleigu og samningur getur fylgt eigninni frá seljanda til kaupanda í samræmi við efni hans.

Hverfisgatan hefur tekið á sig nýja mynd eftir mikla endurnýjun og uppbyggingu á seinustu misserum og árum.  Auðvelt aðgengi er að eigninni og bílastæðahús handan götunnar.
Fágætt tækifæri til að eignast heila húseign með fjölbreytta nýtingarmöguleika í hjarta borgarinnar.

Eigendur hlusta á raunhæf tilboð.

Áhugasamir bóki skoðun hjá Ragnari Þorgeirssyni, löggiltum fasteignasala, sem veitir nánari upplýsingar í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is

 

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36