Guðnýjarbraut 7, 260

Fjarlægð/Seld - Eignin var 79 daga á skrá

Verð 114,9
Stærð 225
Tegund Einbýli
Verð per fm 511
Skráð 6.2.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár 2006
mbl.is

ALLT fasteignasala sími 560-5500 kynnir Guðnýjarbraut 7 í Innri – Njarðvík.
Vandað og vel skipulagt  225 fm. 6 herbergja ( 4 svefnherbergi) einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Glæsilegar sérsmíðaðar innréttingar. Eign fyrir vandláta.
Samkvæmt þjóðskrá Íslands er íbúðarhlutinn 183,7 fm og bílskúr 41,3 fm samtals 225 fm. Lóð frágengin og með sólpalli. 

Mjög góð staðsetning í rólegri og lokaðri götu þar sem er stutt í grunnskóla, leikskóla og út á Reykjanesbrautina. Falleg gönguleið með fram sjónum er stutt frá. 

Allar nánari upplýsingar veitir Dísa Edwards lgf í síma 8636608 og á netfanginu disa@allt.is

Stutt lýsing: Forstofa, sjónvarpshol, þrjú barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, stofa þar sem hátt er til lofts, eldhús með sérsmíðuðum innréttingum og , granít borðplötu, baðherbergi með walk in sturtu og stóru baðkari, gesta baðherbergi með salerni og handlaug, sólpallur úr lerki með heitum nudd potti og frágengin lóð. Gegnheilt olíuborið eikarparket er á alrými og herbergjum, granít flísar í eldhúsi og forstofu og flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Tölvustýrt gólfhitakerfi er í húsinu sem lækkar sig niður á nóttunni og skilar uþb 50% lægri reikning. Bose hátalarakerfi er í stofu sem fylgir með.

Nánari lýsing:
Forstofa er með granít flísum á gólfi. Við forstofu eru rúmgott barnaherbergi ásamt salerni og walk in fatahengi. Einnig er stór fataskápur. 
Stofa, borðstofa og sjónvarpsrými er í björtu, opnu rými. Gasarinn er í stofu og útgangur á fallegan og skjólstæðan sólpall. 
Eldhús hefur mikið pláss og opið. Vönduð sérsmíðuð innrétting og granít borðplata. Eyja með spanhelluborði. Innbyggð uppþvottavél og bakaraofn frá Miele. Blöndunartæki eru frá Hans Grohe. 
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu fataherbergi. Útgengt er á sólpall.
Barnaherbergi eru þrjú og öll afar rúmgóð. Fataskápur er í tveimur.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Sérsmíðuð innrétting. Blöndunartæki úr Axis hönnunarlínunni frá Hans Grohe. Stórt baðkar og walk in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn.
Gesta baðherbergi hefur flísar á gólfi, viðar innréttingu og upphengt salerni.
Þvottahús er á milli íbúðar og bílskúrs ásamt geymslu. Sérsmíðuð innrétting þ.s tæki eru í vinnuhæð. Flísar á gólfi. 
Bílskúr er 41,3 fm og hefur hita, 3 fasa rafmagn og vatn. Gólf er flotað. 
Sólpallur er úr lerki, afar rúmgóður og skjólstæður og þar er heitur nudd pottur.

* Í svefnherbergjum, herbergisgangi, stofu, fotstofu, í boga í eldhúsi og úti verða ný LED ljós. Falleg lýsing er einnig í þakskeggi*

Glæsileg eign á fjölskylduvænum og fallegum stað í Innri Njarðvík. Ekkert hefur verið til sparað við innréttingu á eigninni.

Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Dísa Edwards
Löggiltur Fasteignasali 
disa@allt.is
863-6608


ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum: 
  • Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ 
  • Víkurbraut 62,  240 Grindavík 
  • Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ 
Kostnaður kaupanda: 
  • Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili. 
  • Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500. 
  • Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni. 
  • Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.  
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. 
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37
Mynd 38
Mynd 39
Mynd 40
Mynd 41
Mynd 42
Mynd 43
Mynd 44
Mynd 45
Mynd 46
Mynd 47
Mynd 48
Mynd 49
Mynd 50
Mynd 51
Mynd 52
Mynd 53
Mynd 54
Mynd 55
Mynd 56
Mynd 57
Mynd 58
Mynd 59
Mynd 60
Mynd 61
Mynd 62
Mynd 63
Mynd 64