Verð | Tilboð |
Stærð | 282 |
Tegund | Annað |
Verð per fm | |
Skráð | 1.12.2023 |
Fjarlægt | |
Byggingarár | 1981 |
mbl.is | 1190121 |
Miklaborg kynnir: TIL SÖLU EÐA LEIGU - Fallegt verslunar og þjónustuhúsnæði á eftirsóttum stað rétt við Kringluna í Rvk.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is
Um er að ræða verslunar og þjónustuhúsnæði þar sem hárgreiðslustofan Salon VEH hefur verið rekin við góðan orðstýr í tugi ára, ásamt heildsölu. Húsnæðið er að mestu opin vinnurými en bakatil eru lager, kaffistofa, snyrting, skrifstofur og fundarherbergi en heildsala er einnig rekin í húsnæðinu. Léttir timburveggir aðskilja rýmin sem auðvelda má taka niður og opna húsnæðið betur. Gólf eru flotuð og lökkuð og innfelld lýsing er í loftum. Opið er úr sameign hússins inn í húsnæðið. Hægt er að leigja bílastæði í bílakjallara hússins og í dag er í gildi leigusamningur um 3 bílastæði, en þar er fjöldi stæða. Innangengt er úr bílageymslunni í húsnæðið.
Frábær staðsetning fyrir verslunar og þjónustuhúsnæði. Nóg af bílastæðum fyrir framan húsið. Stórir verslunargluggar snúa út að götu og rýmið hefur því frábært auglýsingagildi. Verslunarhúsnæði á þessum stað koma mjög sjaldan í sölu.
Fyrir liggur að húsfélagið hefur farið í umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir á sameign hússins frá árinu 2021 og er viðbúið að framkvæmdum ljúki bráðlega. Kringlan 7, húsfélag á 20,67% eignarhlut í húsinu Kringlan 7 og hefur haft leigutekjur af þessum eignum frá því að húsið var byggt. Beinn eignarhlutur seljanda í húsfélaginu er 4,37% en húsfélagið er eigandi að lóðinni Kringlan 7 þar sem fyrirhugaðar eru nýbyggingar atvinnu- og íbúðarhúsnæði sem hluti af uppbyggingu Kringlusvæðisins. Eignarhlutur í sameign hússins er 3,47% og eignarhlutur í lóð er 2,44%.
Mögulegt er að fá keyptan rekstur hárgreiðslustofunnar Salon VEH sem hefur verið rekin í húsnæðinu við góðan orðstýr í tugi ára, ásamt heildsölu.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 8970634 eða throstur@miklaborg.is