Ásakór 13, 203
Fjarlægð/Seld - Eignin var 8 daga á skrá
Verð |
89,9
|
Stærð |
140
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
644
|
Skráð |
4.4.2024 |
Fjarlægt |
12.4.2024 |
Byggingarár |
2007 |
mbl.is |
|
Oscar Clausen lfg. og Domunova kynna: Mjög fallega, bjarta og vel skipulagaða 4ra herbergja endaíbúð á 6. hæð (efstu) í góðu lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu við Ásakór 13 í Kópavoginum. ÞRJÚ RÚMGÓÐ SVEFNHERBERGI - STÓRAR SVALIR - GLÆSILEGT ÚTSÝNI - ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR. Eignin er skrá hjá FMR: 139,7 fm íbúð á sjöttu hæð merkt: 06-03 þar af 9 fm geymslu í kjallara merkt: 01-17. Íbúðinni tilheyrir bílastæði merkt: B13 í bílageymslu. Nánari lýsing eignar:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum fataskáp með rennihurðum og hurð aðskilur forstofu frá aðalrými.
Alrými: Eldhús, borðstofa og stofa eru í alrými. Stórir gluggar gera rýmið einstaklega bjart og opið.
Eldhús: Í eldhúsinu er falleg eikar innrétting með hvítri borðplötu og góðu skápaplássi.Eyja er í eldhúsi sem aðskilur stofu. Opið er yfir í stofurýmið frá eldhúsinu.
Stofa: stofan er mjög rúmgóð og björt og samliggjandi eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengt út á suð/vestur svalir með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Baðherbergið er mjög rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar er með sturtuaðstöðu. Hvít innrétting með dökkri borðplötu og góðu skápaplássi eins er sérsmíðaður speglaskápur Handklæðaofn er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú, öll eru herbergin rúmgóð með parketi á gólfi, góðir fataskápar með rennihurðum eru í 2 svefnherbergjum.
Þvottaherbergi: Þvottaherbergið er innan íbúðar með hvítri innréttingu með vaski og flísum á gólfi.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign sem er skráð 9 fm. einnig er sameiginleg hjóla og
Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem er stutt í Hörðuvallaskóla og leikskólana Kór, Baug og Austurkór. Öll þjónusta í hverfinu t.a.m Krónan, Nettó, íþróttaaðstaða í Kórnum og stutt er í útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.861 8466 / oc@domusnova.isSkrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.