Lyngás 1F, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá
Verð |
69,9
|
Stærð |
79
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
886
|
Skráð |
16.3.2024 |
Fjarlægt |
22.3.2024 |
Byggingarár |
2019 |
mbl.is |
|
FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR - NÝLEG, FALLEG OG BJÖRT 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í LYFTUFJÖLBÝLI Í MIÐBÆ GARÐABÆJAR Í GÖNGUFÆRI VIÐ SKÓLA, LEIKSKÓLA OG ÞJÓNUSTUKJARNA. Stór bakgarður með leiktækjum. Íbúðin skiptist í forstofu, opið eldhús og stofu, 2 svefnherbergi og baðherbergi með innréttingu fyrir þvottaaðstöðu. Ljóst harðparket á gólfum. Næg bílastæði eru fyrir framan húsið.Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs., í síma 837.8889 eða hjá johanna@fstorg.is NÁNARI LÝSING: Íbúðin er i Lyngás 1F, stórum fjölbýliskjarna sem nær yfir Lyngás A-H og var þessi hluti byggður 2019. Íbúðin er á móti lyftunni þegar komið er upp og snýr út í garðinn.
Forstofugangur/hol: Með tvöföldum fataskáp. Flísar á gólfi.
Barnaherbergi: Innaf forostofu. Rúmgott með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa, innréttingu við vask, handklæðaofni og upphengdu salerni. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa/eldhús: Opið rými með ljósri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, keramik helluborði og stálháf. Stór áföst eyja með miklu skápaplássi. Úr stofu er útgengt á svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott með skápum yfir heilan vegg.
Gólfefni: Ljóst harðparket á öllum gólfum nema á forstofu og baðherbergi.
Geymsla/Sameign: 8 fm. sérgeymsla er í sameign (innifalin í fermetratölu). Þá er þar sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Falleg 3ja herbergja íbúð á vinsælum stað í miðbæ Garðabæjar. Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, lgfs., í síma 837.8889 eða hjá johanna@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.700.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.