Logafold 22, 112

Fjarlægð/Seld - Eignin var 87 daga á skrá

Verð 67,9
Stærð 124
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 549
Skráð 19.2.2024
Fjarlægt 17.5.2024
Byggingarár 1987
mbl.is

Domusnova og Ingunn Björg kynna í sölu fallega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja endaíbúð á annari hæð ( gengið upp hálfa hæð ) með bílastæði í bílakjallara við Logafold 22 í  Grafarvogi. Um er að ræða íbúð sem skráð er 99,3 m2 að stærð skv. fasteignaskrá HMS auk geymslu og bílastæðis sem skráð er 23 m2 , samtals er eignin 123,6 m2.  Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús með fínum borðkrók, þvottahús inn af eldhúsi, eldhús sem opið er við stofu að hluta, tvö herbergi, baðherbergi, geymslu í kjallara auk sérmerkts bílastæðis í bílakjallara. Rúmgóðar suðursvalir. 

Húsið stendur á jaðarlóð og er göngustígur og opið svæði aftan við húsið. Einstaklega fallegt útsýni út á fjörðinn. Næg bílastæði. 

Sérlega góð eign með mikla möguleika. Fjölskylduvænt umhverfi, stutt í leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu. Frábærar gönguleiðir og útivistasvæði  í nágrenninu.

                            - EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS -


Nánari upplýsingar veitir: Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Lýsing eignar:
Forstofa:
Mjög rúmgóð, flísar á gólfi, stór fataskápur. 
Eldhús: Fín eldri innrétting, fallegur rúmgóður borðkrókur, flísar á gólfi. Opið að hluta við stofu. Útgengt út á suðursvalir með fallegu útsýni út á fjörðinn. 
Stofa: Rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu. Parket á gólfi. 
Svalir: Rúmgóðar suðursvalir með svalaskjóli að hluta. Fallegt útsýsni.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Barnaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, fatahillur. 
Baðherbergi: Flísalagt gólf.  Baðkar með sturtu, eldri innrétting með efri og neðri skápum. 
Þvottahús: Staðsett inn af eldhúsi, mjög rúmgott, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi. 
Bílastæði:  23 m2 sérmerkt bílastæði í upphituðum bílakjallara með þvottaaðstöðu. 
Sérgeymsla staðsett í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.

Ath. Myndir í stofu , borðkrók í eldhúsi og hjónaherbergi eru tölvuteiknaðar til þess að sýna möguleikana sem rýmið hefur upp á að bjóða. Íbúðin er tóm í dag. 

Athygli er vakin á því að seljendur hafa ekki búið í eigninni og þekkja því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í söluyfirlitinu. Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga. 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37