Lyngás 1A, 210
Fjarlægð/Seld - Eignin var 1 dag á skrá
Verð |
84,9
|
Stærð |
114
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
747
|
Skráð |
5.9.2023 |
Fjarlægt |
7.9.2023 |
Byggingarár |
2016 |
mbl.is |
|
Fasteignamarkaðurinn ehf. s. 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 113,7 fermetra 4ra herbergja íbúð á 3. hæð með tvennum svölum og sérbílastæði í bílageymslu með rafhleðslustöð í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi með lyftu á mjög góðum stað, miðsvæðis í Garðabæ. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2024 er kr. 86.300.000.-
Lýsing eignar:
Forstofa / gangur, parketlaður og með fataskápum.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innréttingar og efri skápar með speglahurðum, vegghengt wc og flísalagöð sturta með glervegg á stálprófílum.
Barnarherbergi II, parketlagt og rúmgott með fataskápum og útgengi á mjög rúmgóðar svalir til suðausturs.
Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með hvítum innréttingum með flísum á milli skápa og eyju með áfastri borðaðstöðu. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu og tengi er fyrir uppþvottavél.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og góðar innréttingar með vaski og stæðum fyrir vélar í vinnuhæð.
Stofa, parketlögð björt og rúmgóð með útgengi á svalir til vesturs.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum.
Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem búið er að setja upp rafhleðslustöð.
Sérgeymsla, 8,1 fermetri að stærð með mikilli lofthæð og hillum.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, rúmgóð.
Húsið að utan lítur vel út og sameign er öll mjög snyrtileg og vel umgengin.
Staðsetning eignarinnar er mjög góð miðsvæðis í Garðabænum þaðan sem stutt er í Flataskóla, Garðaskóla, íþróttasvæði Stjörnunnar, Sundlaug Garðabæjar, verslanir og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is