Skipholt 62, 105

Verð 126,9
Stærð 186
Tegund Hæðir
Verð per fm 683
Skráð 18.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2002
mbl.is 1252203

Fljótlega laus til afhendingar.

Borg fasteignasala kynnir: Falleg og björt miðhæð með sér inngangi og bílskúr að Skipholti 62. Tvennar svalir. Sér bílastæði fyrir allt að þrjá bíla. Tvö stór svefnherbergi en auðvelt er að skipta öðru herberginu í tvennt og hafa þrjú svefnherbergi eins og teikningar gera ráð fyrir. Stórt baðherbergi og gestasalerni að auki. Stofa og eldhús eru í einu stóru opnu rými. Ein af þessum fágætu nýlegu
vel staðsettu sérhæðum í hverfi 105 sem er mjög vel staðsett gagnvart öllum samgöngum. Húsið er byggt 2002 og íbúðin var endurinnréttuð árið 2006.

 
Nánari lýsing:
Forstofa: Opið rými með flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Stórt og opið eldhús. Stór eldhúseyja með granít borðplötu og borðpláss fyrir allt að 6 stóla. Innrétting með miklu skápaplássi og granítborðplötu. Vegleg gaseldavél og ofn frá SMEG.
Stofa og borðstofa: Opið rými með eldhúsi og útgengi út á svalir. Arinn er í stofunni. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi: Tvö stór svefnherbergi (voru þrjú samkvæmt teikningu). Hjónaherbergið er með góðu skápaplássi og fataherbergi.
Baðherbergi: Mjög rúmgott baðherbergi með tveimur handlaugum. Stór sturta og sér baðkar. Handklæðaofn.
Gestasalerni: Flísalagt gestasalerni..
Þvottahús: Inn af gestasalerni er þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, snúrum og skolvask.
Bílskúr: 26,3m2 bílskúr með bílastæði fyrir framan. Eigandi notar stæðið undir þrjá bíla.
Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.lagnakompa og góð sorpgeymsla

Hiti í bílaplani framan við hús.

Stutt í alla þjónustu og samgöngur. 

Upplýsingar veitir Davíð Ólafsson löggiltur fasteignasali í síma 897-1533 eða david@fastborg.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22