Skógar, 320

Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá

Verð 26,0
Stærð 43
Tegund Sumarhús
Verð per fm 610
Skráð 30.4.2024
Fjarlægt 17.5.2024
Byggingarár 1993
mbl.is


Domusnova, Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali  S 846-4144 kynna: 

EINSTAKT TÆKIFÆRI : 3JA HEKTARA LEIGULÓР

Sumarhús í landi Skóga í Flókadal í Borgarbyggð.  
Lóðin er efst í landi Skóga næst landi Hrísa og er ekki hluti af skipulögðu sumarhúsahverfi.
Húsið var byggt árið 1993 og er 42.6 fm að stærð ásamt sér 12 fm geymslu. Samtals stærð 54.6
Húsið stendur á ca. 3 ha leigulóð. Það er hitað með rafmagni og er neysluvatn tekið úr borholu frá næstu lóð.

Nánari lýsing
Um er að ræða timburhús byggt á steyptum stöpplum með stölluðu stáli á þaki. 
Gengið er inni í forstofu með fatahengi.
Þar innaf eru tvö svefnherbergi, rúm og  skápar í öðru en kojur í hinu. 
Baðherbergi er með sturtuklefa.  
Setustofa og eldhús mynda alrými.  Viðarinnrétting er í eldhúsi, ásamt eldavél og ísskáp.
Gengið er úr stofu út á sólpall með skjólveggjum. 
Svefnloft er yfir hluta hússins og er gengið þar upp stiga frá alrými.
Parket er á öllum gólfum hússins.
Geymsla (sambyggð húsinu) er með sérinngangi af sólpallinum. Þar er rafmagn og aðstaða fyrir frystikistu. Að auki er gámur á lóðinni sem er skráður sem geymsla.

Búið er leggja sverari kapal að húsi þannig að hægt verði að setja upp hleðslustöð fyrir bíl.
Búið að leggaj ljósleiðara inn í hús, ekki verið notaður. 

Heitur pottur er á sólpallinum við húsið og leikkofi fyrir börn á lóðinni.
Húsið er fallega staðsett á lóðinni, með stórri grasflöt.  Lóðin er mjög vel gróin,  með trjám og og öðrum gróðri.

Nánari upplýsingar veita:
Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali soffia@domusnova.is  / sími 846-4144


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:  Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24