Þvervegur 4, 340

Fjarlægð/Seld - Eignin var 150 daga á skrá

Verð 24,5
Stærð 115
Tegund Einbýli
Verð per fm 213
Skráð 4.8.2020
Fjarlægt 1.1.2021
Byggingarár 1934
mbl.is

Domusnova fasteignasala kynnir til sölu einbýlishús á frábærum stað í Stykkishólmi. Örstutt í verslun, veitingastaði og á höfnina. Fallegt útsýni í átt að höfninni er frá efri hæð hússins.

Um er að ræða 114,8 fm timburhús byggt árið 1934. Húsið skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofu og hol. Grasblettur umlykur húsið. Malar innkeyrsla.

Þetta er gott tækifæri til að eigast gott fjölskylduhús á góðum stað í þessu fallega bæjarfélagi.
 

Kominn er tími á ýmist viðhald í húsinu, m.a. þaki, klæðningu og gluggum og gleri.

Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Forstofa / hol: með flísum á gólfi.
Svefnherbergi I: innaf forstofu með parketi á gólfi.
Baðherbergi: endurnýjað fyrir nokkrum árum með sturtu, innréttingu með skápum og aðstöðu fyrir þvottavél, upphengdu salerni og flísum á gólfi.
Svefnherbergi II: rúmgott með tveimur gluggum, fataskápum og flísum á gólfi.
Svefnherbergi III: rúmgott með flísum á gólfi.
Hol / sjónvarshol: með flísum á gólfi.
Hitakompa: innaf sjónvarpsholi.

Efri hæð:
Baðherbergi: með upphengdu salerni, handklæðaofni, skáp og parketi á gólfi.
Eldhús: með ljósri innréttingu með efri og neðri skápum, borðkrók, aðstöðu fyrir þvottavél, gluggum á tveimur hliðum og korkflísum á gólfi.
Stofa / borðstofa: samliggjandi í opnu og björtu rými með teppi á gólfi.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 / 527-1717 eða snorri@domusnova.is
Skrifstofa Domusnova fasteignasölu í síma 527-1717 eða eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domusnova fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar, almennt á bilinu kr. 50.000 - 75.000.  Nánar um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu kr. 67.900. 
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26