Tryggvagata 13, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 108,9
Stærð 111
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 978
Skráð 11.1.2024
Fjarlægt 19.1.2024
Byggingarár 2017
mbl.is

Einstaklega falleg og glæsileg íbúð á 2. hæð með aukinni lofthæð í hjarta miðborgarinnar við Tryggvagötu í Reykjavík. Göngufjarlægð í alla þá þjónustu og afþreyingu sem miðborgin hefur upp á að bjóða. Eignin er í vönduðu lyftuhúsi sem var byggt 2017 og er eignin öll hönnuð með hliðsjón af miklum gæðum, þægindum og glæsileika. Mikið er lagt upp úr hljóðeinangrun í húsinu, jafnt gagnvart hljóðum utanhúss sem og milli hæða og íbúða. Hjólastólaaðgengi er í allar íbúðir og sameignarrými hússins. Íbúar geta sótt um íbúakort bílastæðasjóðs. 
Eignin skiptist í anddyrisgang, stofu, borðstofu og eldhús í alrými, baðherbergi, hjónaherbergi með walk-in skáp og baðherbergi og svefnherbergi
Hiti er í öllum gólfum. Free@home stýrikerfi fyrir ljós og myndavéladyrasíma. Snertilaust lyklaaðgengi í allar íbúð, sameignarrými og útihurðir.


Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 111,3fm. og þar af er geymsla 2,3fm. 

Nánari lýsing:
Anddyri
með góðum fataskáp frá HTH og flísum á gólfi.
Eldhús er samliggjandi stofu, stór eyja með spanhelluborði, marmara borðplötum, innréttingar frá HTH, innbyggðum ísskáp og uppþvottarvél. Góður eldhúskrókur. Flísar á gólfi.
Stofa björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum og flísar á gólfi. Útgengt er út á suðursvalir úr stofunni.
Baðherbergi hvít innrétting, upphengt salerni, innangeng sturta og flísar á gólfi og að hluta til á veggjum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. 
Hjónaherbergi bjart með gólfsíðum gluggum og flísar á gólfi. Útgengt er út á norðursvalir úr herberginu. 
Fataherbergi er inn af hjónaherbergi með flísum á gólfi. 
Baðherbergi er innan af fataherbergi með upphengdu salerni, baðkari og flísar á gólfi. 
Svefnherbergi bjart og rúmgott, fataskápur frá HTH, gólfsíðir gluggar og flísar á gólfi. 

Geymsla er í sameign í kjallara
Dagnotkunar hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og langtíma hjóla og vagnageymsla í kjallara.

Inngangar í húsið eru frá Tryggvagötu og Geirsgötu og lyklalaust aðgengi er í sameign og í íbúðir. Einstaklega glæsileg sameign, með marmara á gólfum á jarðhæð og sjónsteypu ásamt listaverkum eftir Leif Breiðfjörð. Tveir stigagangar eru í húsinu með lyftum og stigahúsum með hljóðdempandi teppi, sjónsteypu og glerhandriðum. 

Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir  löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32