Klukkuholt Gbæ. 15, 225
Fjarlægð/Seld - Eignin var 16 daga á skrá
Verð |
112,5
|
Stærð |
152
|
Tegund |
RaðPar |
Verð per fm |
742
|
Skráð |
28.2.2023 |
Fjarlægt |
17.3.2023 |
Byggingarár |
2006 |
mbl.is |
|
Hraunhamar kynnir: Klukkuholt 15 Garðabæ (Álftanes). Glæsilegt vandað endaraðhús á einni hæð með innb. bílskúr samtals 151,7 fm. (byggt 2006) Frábær staðsetning í rólegum botnlanga.
Hiti í gólfum. Stórir verandir báðum megin við húsið. Heitur pottur. Virkilega góð eign á þessum róglega og vinsæla stað. Húsið gæti verið laust fljótlega.
Vinsamlegast pantið tíma til að skoða. (sýnum líka samdægurs) Eignin skiptist m.a. þannig: Forstofa með skáp,
hol/alrými, glæsilegt rúmgott
eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum. (útgengt á suður veröndina) Borðplötur með steini á. Glæsileg
eyja með keramikhelluborði og steinplötu.
Rúmgóð björt
borðstofa er við eldhúsið.(hurð út í garð)
Stofan er björt og falleg með hurð út í garðinn og sólpallinn. Rúmgott
svefnherbergi með skáp, og annað gott herbergi með skáp. Glæsilegt
baðherbergi, góð sturtuaðstaða þar.
Inn af holi er rúmgott
þvottaherbergi með innréttingu og skolvaski. Innangengt er í bílskúr frá holi en í dag er
bílskúrinn tvískiptur þannig að í honum er rúmgóð herbergisaðstaða (gluggalaus) og geymsluðastaða. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs líka.
Frá holi er gengið upp vandaðan hringstiga, en þar er opin
koníksstofa á teikningu (gler frontur) en gott
vinnuherbergi í dag nokkuð undir súð.(ekki barnaherbergi) Velux gluggi þar.
Flísar og parket á gólfum. Hiti í öllum gólfum. (nema í risherbergi)
Garðurinn er rúmgóður og fallegur með pöllum, skjólgirðingum og heitum potti.Verönd að framan og aftanverðu. Geymsluhús að aftanverðu. Grillskýli að framanverðu.
Stórt bílaplan, hellulagt og upphitað.
Nánari uppl gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is
Freyja M Sigurðard. löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala.https://hraunhamar.is/https://www.facebook.com/hraunhamarhttps://www.instagram.com/hraunhamar/