Pósthússtræti 3 - skrifstofa til leigu, 101

Fjarlægð/Seld - Eignin var 31 dag á skrá

Verð Tilboð
Stærð 85
Tegund Atv.
Verð per fm
Skráð 12.7.2021
Fjarlægt 12.8.2021
Byggingarár
mbl.is

Til leigu hjá Reitum: Endurnýjuð skrifstofa í sögufrægu húsi

85 fermetra skrifstofa á 1. hæð sem hefur verið endurnýjuð þannig að arkitektúr og útlitseinkenni húsins fái notið sýn. Í rýminu er ný kaffiaðstaða með hnotuinnréttingu, steinborðplötu, undirborðsvask og innfelldum ísskáp. Á gólfum er nýtt gegnheilt eikarparket lagt í klassískt "chevron" mynstur. Vönduð lýsing bæði rýminu sjálfu og á gangi.  Tvær skrifstofur eru á hæðinni og deila þau tveimur nýjum salernum. Húsumsjón. Geymsla fylgir í kjallara. 85 fermetrar er brúttóstærð, þ.e. hlutdeild í sameign er innifalin í fermetrafjölda.  Afhending við undirritun. 

Myndband um sögu hússins 

Pantið skoðun hér eða hafið samband við Halldór Jensson, sölustjóra, í síma 840 2100 eða í netfanginu halldor@reitir.is til að fá nánari upplýsingar.

Pósthússtræti 3 var fyrsta meiri háttar mannvirkið sem bæjarstjórn Reykjavíkur stóð fyrir að reist yrði og hýsti það Barnaskóla Reykjavíkur á árunum 1883 til 1898. Frá 1898 til 1915 var rekið pósthús í húsinu en einnig voru þar höfuðstöðvar Landsíma Íslands frá 1906 til 1931. Eftir það var húsinu fengið hlutverk Lögreglustöðvar Reykjavíkur og þjónaði það því hlutverki þar til ný lögreglustöð við Hlemm var tekin í notkun um 1965. Á meðan húsið var aðallögreglustöð Reykjavíkur voru frægar fangageymslur í kjallaranum, aðallega til þess að hýsa menn sem voru teknir úr umferð vegna ölvunar á almannafæri. Eftir 1965 var húsið aftur tekið í þágu Pósthússins í Reykjavík en undanfarin ár hefur þar verið starfsemi á vegum Reykjavíkurborgar. Húsið var hlaðið árið 1885 úr tilhöggnu grjóti með sama hætti og Alþingishúsið enda er höfundur þess F. A. Bald sem var yfirsmiður við byggingu Alþingishússins árið 1881.

Reitir bjóða framsýnum fyrirtækjum klæðskerasniðið atvinnuhúsnæði til leigu. Reitir byggja á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar árið 1987. Innan eignasafnsins er skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði, sérhæft atvinnuhúsnæði og hótel, auk metnaðarfullra þróunarverkefna. Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og staðið þannig vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar, m.a. með grænum leigusamningum við fjölda viðskiptavina.

Kynntu þér þjónustu Reita og fleira húsnæði til leigu á www.reitir.is/skrifstofur 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7