Miðás 2, 700

Fjarlægð/Seld - Eignin var 39 daga á skrá

Verð 145,0
Stærð 829
Tegund Annað
Verð per fm 175
Skráð 5.1.2021
Fjarlægt 13.2.2021
Byggingarár 1982
mbl.is

INNI fasteignasala s. 580 7905 -  inni@inni.is
 

Til sölu er Bílaverkstæði Austurlands ehf. ásamt öllum eignum félagsins. Rótgróið og öflugt fyrirtæki í góðum rekstri á Egilsstöðum. Um er að ræða öflugt bílaverkstæði ásamt bílasölu með 12 starfsmenn. Bílaverkstæði er sérlega vel útbúið og sýningarsalur bílasölu rúmgóður og bjartur.

Helsta eign fyrirtækisins er húsnæðið við Miðás 2 á Egilsstöðum. Miðás 2 er byggt í fjórum hlutum, fyrsti hluti árið 1982 og síðasti hluti hússins árið 2005. Húsið er almennt í góðu ástandi þó nýjasti hluti hússins sé eins og kannski gefur að skilja í betra ástandi en sá elsti. Húsið skiptist annarsvegar í sal bifreiðaverkstæðis með lagerrými, kaffistofu, starfsmannaaðstöðu og salerni og hinsvegar í  flísalagðan sýningarsal með móttöku, kaffiaðstöðu og salerni. Á verkstæði eru fimm bílhurðir og ein gryfja. Bílhurð er einnig á sýningarsal. Lóð er vel frá gengin með bundnu slitlagi og steyptri stétt framan við hús, einnig er c.a. 70 m² steypt stétt bakatil. 

Ath. mögulegt er að kaupa eingöngu rekstur fyrirtækisins og öll tæki en leigja húsið.

Hér er um að ræða frábært tækifæri til að hefja sjálfsstæðan rekstur á bílaverkstæði og bílasölu samhliða. 
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9