Gullsmári 9, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 17 daga á skrá

Verð 62,5
Stærð 90
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 691
Skráð 1.5.2023
Fjarlægt 19.5.2023
Byggingarár 1996
mbl.is

Bókið skoðun hjá Heimi Hallgrímssyni lögg. fasteignasala / heimir@fastlind.is / 849-0672

FYRIR 60 ÁRA OG ELDRI: LIND fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega tveggja herbergja íbúð á 6. hæð ásamt bílskúr í bílskúrslengju með sérstæði fyrir framan í snyrtilegu lyftuhúsi við Gullsmára 9 í Kópavogi. Glæsilegt útsýni yfir suðurhlíðar Kópavogs. Rúmgóð stofa með útgengi á flísalagðar og yfirbyggðar svalir.

Skv. skráningu hjá Þjóðskrá Íslands er eignin alls 90,4 fermetrar, þar af íbúð 61,6 fermetrar og bílskúr 28,8 fermetrar.

Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöðinn Gullsmári (félagsheimili aldraðra) sem er með ýmsa þjónustu, félagsstarf og heitan mat. Innangengt er á milli húsanna. Á efstu hæð er samkomusalur fyrir félagsstarf og fundi, einnig leigir húsfélagið salinn til eigenda til eigin nota. Heilsugæslan Hvammur og verslunarmiðstöðin Smáralind eru í göngufæri sem og verslunarkjarninn Smáratorg. 


Forstofa: Með linoleum dúk á gólfi og fataskápum. 
Eldhús: Falleg eikarinnrétting með góðu skápaplássi. Flísar á milli skápa. Linoleum dúkur og gluggi til norðausturs með fallegu útsýni.
Geymsla I: Er staðsett inn af eldhúsi með dúk á gólfi og hillum.
Stofa: Linoleum dúkur á gólfi. Gluggar til norðvesturs. Mikið útsýni til norðurs og norðvesturs. 
Svefnherbergi: Linoleum dúkur á gólfi, fataskápar og gluggi til norðvesturs. 
Baðherbergi: Dúkur á gólfi, flísalögð sturta, salerni og handlaug. Innrétting með ágætu skápaplássi. Tengi fyrir þvottavél inn af baðherbergi.
Geymsla II: Er staðsett í kjallara ásamt sameiginlegri hjólageymslu. 
Bílskúr: Fylgir eigninni sem er 28,8 fermetrar að stærð og með sérbílastæði fyrir framan. 

Seljandi hefur ekki búið í íbúðinni og þekkir því hvorki né getur borið ábyrgð á ástandi hennar umfram það sem sjá má við venjulega sjónskoðun.
Kaupendum er því bent á að kynna sér ástand eignarinnar vel og leita sér eftir atvikum aðstoðar sérfróðra manna við skoðun.


Allar upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson löggiltur fasteignasali í síma 849-0672 eða heimir@fastlind.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21