Barkarstaðir, 531

Fjarlægð/Seld - Eignin var 6 daga á skrá

Verð 100,0
Stærð
Tegund Lóð/Jarðir
Verð per fm
Skráð 19.4.2024
Fjarlægt 26.4.2024
Byggingarár
mbl.is

Fasteignasalan Domus á Blönduósi hefur fengið til sölu jörðina Barkarstaði í Miðfirði.  Barkarstaðir eru jörð austan Miðfjarðarár og er staðsett í um 25 kílómetra fjarlægð frá Hvammstanga. Jörðin er talin um 1.000 ha, þar af er ræktað land alls um 50 ha. Á jörðinni er stundaður sauðfjárbúskapur og fylgja um 920 ærgildi.

Land jarðarinnar skiptist í grasgefið láglendi með góða ræktunarmöguleika og annað land sem liggur lítið eitt hærra og er ýmist hálfgróið eða lítt gróið.

Íbúðarhús er skráð 304 fermetrar, byggt árið 1982 úr steinsteypu og timbri. Húsið þarfnast viðhalds utan og innan. Hitaveita er á staðnum.

Á jörðinni er fjárhús með áburðarkjallara frá árinu 1974 alls 252 fermetrar og önnur fjárhús frá árinu 1970, einnig 252 fermetrar. Á milli bygginganna er hlaða, og mynda byggingarnar eina heild. Aðrar byggingar eru bogaskemma, hlaða, geymsla gamalt fjós og bílskúr/vélageymsla, en þessar byggingar eru verðlitlar og sumar að kalla ónýtar. 

Fasteignamat samtals er kr. 92.967.000. þar af er fasteignamat íbúðarhússins kr. 39.550.000..  Veiðihlunninda í Miðfjarðará. Heildarbrunabótamat er kr. 325.125.000. 

Upplýsingar veitir Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 440 7972 eða 8919425 stefano@pacta.is

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11