Vestmannabraut 12, 900
Fjarlægð/Seld - Eignin var 12 daga á skrá
Verð |
25,5
|
Stærð |
53
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
479
|
Skráð |
17.2.2024 |
Fjarlægt |
1.3.2024 |
Byggingarár |
1905 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir snyrtilega og nokkuð endurnýjaða 2.herbergja 53,2 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngöngum frá götu og úr garði á frábærum stað í miðbæ vestmannaeyja. Eignin telur forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Bakgarðurinn er sameiginlegur með fallegum gróðri í góðri rækt.
Þakjárn var endurnýjað sumar 2023Nánari lýsing eignarForstofa með flotuðu máluðu gólfi.
Eldhúsið er opið inn í stofu með harðparketi á gólfi og snyrtilegri innréttingu , nýlegt tveggja hellu spanhelluborð, nettur ísskápurí innréttingu og háglans flísar á milli skápa.
Stofan er rúmgóð með fallegu útskoti með rúmgóðir gluggakistu og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi og hornglugga sem snýr út í garð.
Baðherbergi með sturtu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og salerni. útgegni út á baklóð.
Eignin er skráð með byggingarári 1905 en þessi hluti var byggður 1956 . Nýleg rafmagnstafla. Húsið stendur á góðum stað við miðbæ Vestmannaeyja þar sem stutt er í alla þjónustu og allt sem að Vestmannaeyjar bjóða uppá. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is