Gerplustræti 21, 270

Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá

Verð 63,9
Stærð 82
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 777
Skráð 28.9.2023
Fjarlægt 13.10.2023
Byggingarár 2020
mbl.is

Kjöreign kynnir fallega 2ja herbergja íbúð í nýlegu húsi við Gerplustræti 21, Mosfellsbæ. Gerplustræti stendur í fallegu umhverfi í Helgafellslandinu  á frábærum útsýnisstað en íbúðinni er með góðum svölum sem snúa í suður með frábæru útsýni. Við hönnun hússins og innra skipulags íbúðanna var horft til þess að nýta rými sem best en tryggja á sama tíma gott birtuflæði með tilliti til staðsetningar og útsýnis.
Um er að ræða 2ja herbergja íbúð birt stærð 82,2 fm íbúð merkt 02-0202  með stæði í bílageymslu merkt 03-B05. Sér geymslu (9,6 fm sem er inn i birtri stærð) í sameign ásamt rúmgóðri vagna- og hjólageymslu. 
Nánari lýsing:
Forstofa/hol með fataskáp
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sérsmíðaðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.  Rúmgóður sturtuklefa, upphengt klósett og innrétting við vask.
Stofan/borðstofan er opin og björt með stórum gluggum og útgengi út á suður svalir.
Eldhúsið er í opnu rými með vel skipulagðri innréttingu og glugga til suðurs, innbyggðum ísskáp og uppþvottarvél, helluborð og háfur .
Hjónaherbergið er með rúmgóðum skáp og glugga.
Húsin við Gerplustræti 21-23 eru 4ra hæða staðsteypt lyftuhús með 11 íbúðum hvort. Innréttingar eru frá Ormson, tæki frá AEG, flísar frá Flísabúðinni. Hefðbundið ofnahitakerfi, flísar á baðherbergjum/þvottahúsi. Innveggir eru hlaðnir steypu-steini (Lemga). Húsin eru að mestu klædd viðhaldléttri klæðningu, gluggar eru ál/timbur.  

Glæsileg og rúmgóð íbúð í nýlegu fjölbýlishúsi  efst í Helgafellslandinu með lyftu og bílakjallara, stutt er í matvöruverslun, skóla, leikskóla og sund.

Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða kjoreign@kjoreign.is. Vinsamlegast pantið skoðunartíma.

Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 asta@kjoreign.is
Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 dan@kjoreign.is
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24