Furugerði 29 - 212, 108

Fjarlægð/Seld - Eignin var 34 daga á skrá

Verð 72,9
Stærð 83
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 883
Skráð 26.5.2023
Fjarlægt 30.6.2023
Byggingarár
mbl.is

Helgi lgf. s. 780-2700, Hrönn lgfs. s. 692-3344 og Fasteignasalan TORG kynna með stolti;
Ný, vönduð og glæsileg 2ja herbergja "loft-style" íbúð á 2. hæð með sérinngangi, mikilli lofthæð og glæsilegu útsýni við Furugerði 29 í Reykjavík. 
Furugerði 29 er tveggja hæða fjölbýlishús, skráð stærð eignar er 82,6 m², þar af er stærð íbúðar 73,6 m² og sér geymsla í bílakjallara er 9,0 m².  Bílastæði í bílakjallara merkt E16 fylgir með. Áætluð afhending er í lok apríl 2023.
Óskið eftir nánari upplýsingum á netfangið helgi@fstorg.is eða  hronn@fstorg.is / / Heimasíða verkefnisins (smella hér)

Nánari lýsing; 
Íbúð 212 er í svokölluðum "New York Loft" stíl þar sem bjart alrými er á aðalhæðinni með mikilli lofthæð og háaum gluggum.  Gengið er inn um sérinngang af annarri hæð í anddyri.
Úr anddyri er komið inn í rúmgott og bjart alrými með fallegri eldhúsinnréttingu. 
Eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu rými. 
Úr alrými er gengið uppá millilfoft en birt flatarmál hans er 20 m² en er nokkuð stærri þar sem hluti er undir súð. Úr 
Baðherbergi er með fallegri innréttingu, sturtu og tengi fyrir þvottavél (eða sambyggða þvottavél/þurrkara)

Spennandi nýbyggingar úr vistvænum byggingarefnum á mjög eftirsóknarverðu svæði sem henta öllum aldurshópum. Íbúðir eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi.  Íbúðum er skilað fullbúnum með innréttingum en án gólfefna að undanskildu anddyri og votrýmum (baðherbergi) sem eru flísalögð.
Allar innréttingar eru í ljósum furulit frá Voke-3. Í eldhúsi eru borðplötur úr HPL (high pressure laminate) með ljósgráu yfirborði með steináferð frá Kronospan. Í eldhúsi eru vönduð innbyggð eldhústæki og spanhelluborð.  Útveggir og hluti innveggja innan íbúða eru úr krosslímdum timbureiningum og verður yfirborð þeirra annarsvegar sýnilegt CLT og hins vegar gifsklætt, spartlað og málað.
 
Íbúðir eru loftæstar með sjálfstæðu loftskiptakerfi frá norska framleiðandanum Flexit. Kerfið blæs inn fersku lofti í íverurými og dregur út loft frá baðherbergjum, þvottahúsi og eldhúsi. Varmi úr útsoginu er fluttur yfir í ferska loftið með varmaendurvinnslu án þess að blanda loftinu saman. Gluggar eru ál-timbur gluggar frá danska framleiðandanum Ideal-Combi, Gler er tvöfalt k-einangrunargler og sérstaklega hljóðeinangraðir þar sem við á.
 
-- athugið að myndir eru úr sýningaríbúðum en ekki endilega af tiltekinni íbúð --

Efnisval er með umhverfisáhrif í huga og uppbygging á húsunum miðast við að notuð séu efni sem þurfa lítið viðhald.  Krosslímdar timbureiningar í burðarvirki húsanna eru einangraðar að utan og klædd veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
 Lóðin Furugerði 23-49 skiptist í tvo reiti, Á reit A eru tvö fjölbýlishús á tveimur hæðum með samtals 20 íbúðum og á reit B eru 10 raðhús á tveimur hæðum. Undir húsunum er staðsteyptur kjallari með geymslum og bílastæðum.
 
Nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins www.furugerdi.is

Áætluð afhending er í apríl 2023.

Upplýsingar veitir Helgi í síma 863-8813 / Helgi@fstorg.is og  Hrönn í síma 692-3344 / hronn@fstorg.is eða Fasteignasalan TORG s. 520-9595
 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10