Naustavör 50, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 14 daga á skrá
Verð |
89,0
|
Stærð |
112
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
793
|
Skráð |
16.11.2022 |
Fjarlægt |
1.12.2022 |
Byggingarár |
2021 |
mbl.is |
|
Eignin er seld og opna húsið fellur niður.
-----Naustavör 50 - opið hús - mánudaginn 21. nóvember milli kl. 17:00 og 17:30------
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilega, bjarta og vel skipulagða 112,3 fermetra 3ja herbergja íbúð að meðtaldri 8,4 fermetra geymslu á fyrstu hæð í lyftuhúsi með vestur svölum á þessum vinsæla og eftirsótta stað í Naustavör í vesturbæ Kópavogs. Sérmerkt stæði í bílageymslu fylgir eigninni merkt B01.
Fallegar innréttingar frá Brúnás (hvítlakkaðar og svartbæsaðar) og fallegt eikarparket á gólfum nema á þvottaherbergi og baði en þar eru flísar. Öll eldhústæki eru frá AEG. Innfelld lýsing er í hluta af stofum og í eldhúsi.
Eignin skiptist í: forstofu, hol, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi, barnaherbergi, þvottaherbergi, baðherbergi og rúmgóða stofu.
Eignin er laus og til afhendingar við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Forstofa: með svartbæsuðum skápum, parketlagt gólf.
Hol: með parketi á gólfi.
Eldhús: með fallegri hvítlakkaðri/svartbæsaðri innréttingu og eyju með borðaðstöðu. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur, frystir, bökunar- og örbylgjuofn. Quartz steinn í borðplötum. Útg. úr eldhúsi út á vestur svalir með svalalokun og furugólfborðum.
Hjónaherbergi: rúmgott með fataherbergi innaf með góðum innréttingum og parketlagt gólf.
Barnaherbergi: með hvítum skápum, parketlagt gólf.
Baðherbergi: flísalagt í gólf og veggi, hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta með glerskilrúmi.
Stofa: með parketi á gólfum.
Þvottaherbergi: með ljósgrárri innréttingu og flísalagt gólf.
Sameign: mjög snyrtileg sameign með flísalögðu anddyri og teppalögðum stigagöngum. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á neðstu hæð.
Geymsla: sérgeymsla í kjallara 8,4 fermetrar með lökkuðu gólfi.
Lóðin: frágengin, tyrfð og með fallegum gróðri. Hellulagðar stéttar með hitalögnum undir.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is