Skógarbraut 918, 262

Fjarlægð/Seld - Eignin var 66 daga á skrá

Verð 45,9
Stærð 78
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 592
Skráð 18.12.2023
Fjarlægt 23.2.2024
Byggingarár 1978
mbl.is

Skógarbraut í Reykjanesbæ er íbúðarhúsnæði á 3 hæðum sem byggt var árið 1978 og hefur allt húsið verið endurnýjað að innan. Íbúðirnar eru lausar við kaupsamning.
Nýuppgerðar og fullbúnar 2ja til 3ja herbergja íbúðir með möguleika á HLUTDEILDARLÁNI.

Um er að ræða glæsilega þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð (efstu hæð) að Skógarbraut 918 í Reykjanesbæ.  Eignin hefur mikið verið endurnýjuð. Harðparket á gólfum er frá Parka sem og hurðar. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru flísar frá Álnaborg og vandaðar Ítalskar innréttingar frá Parka. Ný heimilistæki eru í eldhúsi og  sérsmíðuð innrétting frá Parka. Rafmagn hefur verið endurnýjað og eru rofar og tenglar nýir. Einnig er búið að endurnýja rafmagnstöflur.  Búið er að endurnýja skolp út fyrir sökkul, skipta um neysluvatns lagnir, ofnalagnir og ofna. Íbúðin er nýmáluð.  Gluggar hafa verið endurnýjaðir sem og svalahurðar, svalir eru einnig nýjar. Eignin var máluð að utan sumarið 2023 ásamt því að þak verður yfirfarið.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 77,5fm og er þvottahús/geymsla er innan íbúðar.

Eignin skiptist í stofu/alrými sem er opið við eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu innan íbúðar. Innréttingar og hurðar eru frá Parka, flísar frá Álnaborg og parket frá Parka. 

Nánari lýsing:
Anddyri
 með harðparketi á gólfi.
Stofa/borðstofa björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er á góðar svalir.
Eldhús með nýrri fallegri innréttingu með helluborði, ofni, háf, innbyggðum ísskáp, innbyggð uppþvottavél og parket á gólfi. 
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, handklæðaofn, upphengdu salerni, speglaskáp með led lýsingu og flísum á gólfi og hluta veggja.  Hreinlætistæki frá Byko.
Geymsla/þvottahús er innan íbúðar. Gott geymslupláss og flísar á gólfi.

Vagna- og hjólageymsla er köld og er við galf hússins.
Blokkin verður máluð að utan sumarið 2023 og þak yfirfarið. Einnig verður bílastæðum fjölgað fyrir utan húsið. 
Sameign er mjög snyrtileg, á gólfum eru ný gólfefni, vínil flísar og teppi.
Íbúðirnar eru á Ásbrú sem er ört stækkandi samfélag á Suðurnesjum og stutt er í alla þjónustu og skóla. Einungis er um 30-40 mínútna akstur frá Reykjavík.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26