Grænatún 14, 200
Fjarlægð/Seld - Eignin var 22 daga á skrá
Verð |
49,8
|
Stærð |
223
|
Tegund |
Einbýli |
Verð per fm |
224
|
Skráð |
8.1.2016 |
Fjarlægt |
30.1.2016 |
Byggingarár |
1956 |
mbl.is |
|
Gott 222,6 fm einbýlishús á tveimur hæðum, með bílskúr og stórum sólskála. Íbúðrhúsið er 147 fm, bílskúr 40 fm og sólskálinn er 36 fm. Falleg lóð með stórum heitum potti.
Nánari lýsing: Aðalhæð/efrihæð: Anddyri með fatahengi. Geymsla. Innra hol. Stór og björt borðstofa og stofa. Eldhús með hvítri beykiinnréttingu, uppþvottavél. Borðkrókur við glugga. Svefnherbergisgangur. Tvö svefnherbergi og er skápur í öðru þeirra. Snyrting. Frá anddyri er stálgrindarstigi á neðri hæð.
Neðri hæð: Þrjú svefnherbergi. Baðherbergi með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og skápum.
Gólfefni húss: Parket, flísar og Planklitt.
Bílskúr: Bílskúr er áfastur húsi, fullbúinn með vatni, hita, rafmagni og bílskúrshurðaropnara. Góð geymsla er inn af bílskúr.
Lóð: Lóðin er falleg, mikill gróður og göngustígar og bílaplan hellulagt. Hefur fengið verðlaun sem fegursti garður Kópavogs.
Sólskáli: Sólskálinn er 36 fm með vatni, hita og rafmagni, afstúkuðu salerni og eldhúskrók. Fyrir framan sólskálann er stór hellulögð verönd með heitum potti og útisturtu.
Upplýsingar: Kominn er tími á almennt viðhald á eigninni.
Allar nánari upplýsingar gefur Sveinbjörn í síma 892-2916, Halldór Freyr í síma 693-2916, Sigþór s. 899-9787 og Ellert s. 661-1121