Gullsmári 9, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 84 daga á skrá

Verð 71,9
Stærð 72
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 994
Skráð 11.5.2023
Fjarlægt 4.8.2023
Byggingarár 1996
mbl.is

Valhöll fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð ásamt bílskúr í vinsælu húsi við Gullsmára 9 í Kópavogi. Íbúðin er staðsett á 7. hæð og er með góðu útsýni. Íbúðin er eingöngu ætluð 60 ára og eldri.

Íbúðin er skráð 72,3 fm á stærð og henni fylgir bílskúr sem er 28,8 fm, samtals 101,1 fm. Að auki fylgir sérgeymsla í kjallara sem er um 4 fm á stærð og er ekki skráð inn í stærð íbúðar. Heildareignin er því um 105 fm. á stærð.

**Íbúðin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings**

Nánari lýsing: 

Komið er inn í anddyri með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi. Baðherbergið er með sturtuklefa, handklæðaofni, salerni,  innréttingu með skápum og aðstöfðu fyrir þvottavél og þurrkara, dúkur á gólfi. Svefnherbergin eru tvö, bæði með fataskápum og parketi á gólfi. Stofan er opin og björt með parketi á gólfi og útgengi á yfirbyggðar svalir til suð-austurs með fallegu útsýni. Eldhúsið er með viðarinnréttingu og borðkrók og parketi á gólfi. Sérgeymsla er í kjallara.
Íbúðinni fylgir 28,8 fm bílskúr með góðri lofhæð ásamt bílastæði fyrir framan bílskúrinn. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum.

Um húsið:  
Frá jarðhæð hússins er innangengt í félagsheimili eldri borgara en þar er hægt að kaupa heitan mat og sækja ýmiskonar þjónustu og félagsstarf.  Í sameign á efstu hæð er salur ætlaður fyrir félagsstarf og fundi en einnig er hægt að fá salinn leigðan fyrir eigendur til eigin nota. Gullsmári er í göngufæri við verslanir og þjónustu m.a. verslanamiðstöðina Smáralind og Heilsugæslu Kópavogs.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson fasteignasali / lögmaður í síma 699-4407 eða á netfanginu snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21