Gullsmári 9, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 9 daga á skrá

Verð 62,9
Stærð 100
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 627
Skráð 15.7.2021
Fjarlægt 24.7.2021
Byggingarár 1996
mbl.is

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Þórarinn Thorarensen Löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna: 
Um er að ræða vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Gullsmára 9 ásamt stæði í bílageymslu.  Íbúðin er fyrir 60 ára og eldri. Inngangengt í þjónustumiðstöð aldraðra þar sem er mötuneyti, fótaaðgerðastofa, hárgreiðsla, handavinnustofa o.fl. Á lóðinni er púttvöllur. MJÖG SNYRTILEG OG VEL UMGENGIN SAMEIGN - TVÆR LYFTUR - YFIRBYGGÐAR SVALIR MEÐ OPNANLEGUM FÖGUM - MYNDADYRASÍMI Í ÍBÚÐINNI.  ÍBÚÐIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR

Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 222-3819, nánar tiltekið eign merkt 0202.  Íbúðin er skráð 75,6 fm. og eigninni fylgir sérgeymsla. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu merkt 0122 samkvæmt skráningu 24,7 fm, birt heildarstærð íbúðarinnar og bílastæðis er 100,3 fm.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Þórarinn Thorarensen Löggiltur fasteignasali í síma  770-0309 eða th@landmark.is

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi, hvít snyrtileg innrétting með tengi fyrir þvottavél, flísalögð sturta, flísar á veggjum. Rúmgott Svefnherbergi með fataskáp. Annað herbergi innaf stofu, búið að opna að hluta inn í stofuna. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á suðursvalir sem eru yfirbyggðar svalir með opnanlegum fögum. Eldhús með fallegri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, borðkrókur við glugga.  Innaf eldhúsi er geymsla / búr. Gólfefni íbúðar: Parket á forstofu, stofu, eldhúsi og herbergjum, flísar á baðherbergi, geymslu og svölum . Eigninni fylgir sérgeymsla með hillum. Sameiginlegur samkomusalur á 12. hæð fyrir viðburði, afmæli og þ.h. hjá eigendum hússins. 

Góð og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað í Smárahverfi Kópavogs í nálægð við fjölbreytta þjónustu. Húsið hefur ávallt fengið gott viðhald og er í góðu standi. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16