Dalbrekka 2, 200

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð 39,5
Stærð 60
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 657
Skráð 27.8.2020
Fjarlægt 3.9.2020
Byggingarár 2019
mbl.is

Stakfell fasteignasala kynnir nýja 2ja herbergja íbúð á 4. hæð með sérgeymslu og sérbílastæði í bílakjallara.

Íbúðin er merkt 0402 í húsi nr. 2 við Dalbrekku í Kópavogi. Það fylgir stæði merkt íbúðinni í bílakjallara hússins og sérgreymsla. Birt stærð 60,1fm.


Frágangur innanhúss:
Eldhúsinnrétting er samkvæmt teikningu og úr harðplastefni með ljúflokunarbúnaði á skúffum. Borðplata er harðplast með steináferð. Allar innréttingar verða keyptar af viðurkenndum framleiðanda með langa viðskiptasögu.
Með eldhúsinnréttingu fylgir bakaraofn, spanhelluborð og háfur með kolasíu af viðurkenndri gerð AEG . Gert er ráð fyrir plássi og tengingum fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki íbúðum. GROHE Blöndunartæki í eldhúsi
Baðherbergi er með upphengt salerni. Glerskilrúm aðskilur sturtugólf sem er einhalla og aðskilið frá baðgólfi með lítilli brún. Í baðherbergi er sturta. Hitastillir er á blöndunartækjum. Handlaug og „einnarhandar“ blöndunartæki eru í borði. Gólfniðurföll eru í öllum baðherbergjum. Tengingar eru fyrir þvottavél og þurrkara inn á öllum böðum.
Innihurðar eru hvítar, úr harðplastefni. (frá Parka/GKS eða sambærilegt).
Sameign er fullfrágengin og upphituð. Lýsing í sameign verður fullbúin með tímarofa og/eða hreyfiskynjara.
Fullfrágenginn mynddyrasími er í aðalanddyri og tengdur skjá í íbúð. Hvítlakkaðir ofnar eru í anddyrum.
Í bílageymslu fylgir eitt bílastæði í sameiginlegri bílgeymslu. Bílastæðið er sérmerkt íbúðinni. Veggir og loft eru slípuð og rykbundin. Gólf er steypt og slípað án frekari meðhöndlunar. Bílageymslan er ekki upphituð en frostfrí. Bílageymslan er búin samtengdum reykskynjurum og vatnsúðakerfi. Bílgeymsluhurðir eru með fjarstýrðum opnurum.
Frágangur utanhúss:
Lóð er sameiginleg og verður frágengin. Á lóð verða malbikuð bílastæði fyrir íbúa og gesti þeirra. Gönguleiðir að stigahúsum verða snjóbræddar og hellulagðar. Aðrar gönguleiðir verða hellulagðar, steinsteyptar eða malbikaðar. Opin svæði verða frágengin með grasi og lággróðri í samræmi við fyrirliggjandi lóðarteikningar. 
Frábær staðsettning, stutt í alla helstu þjónustu.
Íbúðin afhendist fullfrágengin en án gólfefna.  

Myndir af innréttingum á baði og eldhúsi eru úr annari íbúð.

Eignin verður tilbúin til afhendingar í nóv/des 2020.  


Burðarþolshönnuður er Hanna; lagnahönnuður er EFLA; Mannvit annast brunahönnun og Landmótun annast hönnun útisvæða.
 
Nánari upplýsingar veita Halldór Kristján Sigurðsson Löggiltur fasteignasali, s:6189999,  tölvupóstur halldor@stakfell.is
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupandi greiðir skipulagsgjald frá bæjarfélaginu þegar þess verður krafist (ca 3-6 mán, eftir afhendingu 0,3% af brunabótamati).

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9