Ofanleitisvegur 10, 900

Fjarlægð/Seld - Eignin var 7 daga á skrá

Verð Tilboð
Stærð 80
Tegund Sumarhús
Verð per fm
Skráð 29.2.2024
Fjarlægt 8.3.2024
Byggingarár 2023
mbl.is

Björgvin Þór Rúnarsson lgf og Fasteignaland kynna eignina Ofanleiti 10 900 Vestamanneyjar ,nánar tiltekið eign merkt 01 fastanúmer 2510726 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi

Glæsileg eign með einstöku útsýni í sumarhúsabyggð í Vestmannaeyjum. 
Lóðin 2.680 hektarar samkvæmt FMR.


Heilsárshús í byggingu við Ofanleitisveg 10 í Vestmannaeyjum. Eignin er 80 fm2,  afhendist tilbúin til innréttinga með góðum timburpalli, en hægt er að semja um að fá hana fullbúna, einnig væri hægt að fá hana með svefnlofti..  Eignin verður klædd með lerki sem er viðhaldsfrí klæðning, gluggar og þak verða í dökkgráum lit. 
Eignin verður að grunnfleti samtals 80m2 með 26 gráðu tvíhalla þaki (burst þaki) sem hvílir á steinsteyptum undirstöðum. 
Eignin verður afhent í notkunarflokki 5, s.s. tilbúinn til innréttingar, Timburpallur verður byggður við eignina.
Gluggar verða ál/tré gluggar, dökkgráir að lit.  Þak verður dökkgrátt. 
Húsið verður klædd með lerki, sem er viðartegund sem gránar með aldrinum og þarf ekki að bera á. 

Skilalýsing                                                                                                                             
Bústaðurinn afhendist án gólfefna, innréttinga, flísa innihurða og án hreinlætis og eldhústækja, gólf eru flotuð, milliveggir komnir upp,trégrind, spónaplötur og loks gifsklæðning. Bústaðurinn afhendist með vatnslögnum og affalslögnum, baðherbergi, eldhús kranar og stútar komnir í vegg til að tengja  neysluvatn, vaska og niðurföll komin. Hitalagnir í gólf hitastýringarkerfi uppsett og hiti á húsinu, stýrikerfi fylgir ekki. Rafmagnsintak komið og tafla frágengin að hluta. Rafmagnsrör og dósir í veggjum og loftum, samkvæmt teikningum. Ídregið fyrir vinnulýsingu í hverju rými, en án rofa og tengla. Í alrými eru upptekin loft sem gefur rýminu mikið gildi. góð lofthæð í öðrum rímum (niðurtekin loft). Pallur fylgir í vestur út gengið úr forstofu, stofu og svefnherbergi. Lóð ekki frágengin

Áætlaður afhendingartími er vor 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Frekari upplýsingar sendist á bjorgvin@fasteignaland.is
 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Með kveðju.
Björgvin Þór Rúnarsson
Eigandi / Löggiltur fasteigna- og skipasali.
bjorgvin@fasteignaland.is
00354-855-1544

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17