Verð | 47,9 |
Stærð | 112 |
Tegund | Einbýli |
Verð per fm | 429 |
Skráð | 7.2.2018 |
Fjarlægt | 16.2.2018 |
Byggingarár | 1979 |
mbl.is |
**Pantið skoðun: arnilar@fstorg.is** FS TORG kynnir: Fallegt 111,5 fm einbýlishús með bílskúr á frábærum stað í Garðabæ. Gróinn skjólgóður garður með sólpalli og áhaldageymslu. Einstök eign í þessu vinsæla hverfi. Húsið er nýmálað innan og utan og öll gólfefni, nema í baði, voru endurnýjuð fyrir tæpum tveimur árum. Allar nánari upplýsingar veitir Árni Ólafur fasteignasali, s. 893 4416 og arnilar@fstorg.is.
Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskap.
Eldhús: Eldhús eignarinnar var endurnýjað fyrir nokkrum árum. Innréttingin er hvít með mahogany köntum og listum. Tæki eru úr burstuðu stáli, ofn og keramik helluborð. Parket er á gólfi, sem var skipt um og endurnýjað fyrir tæpum tveimur árum, sem og allt gólfefni í íbúðinni nema flísar á baði.
Stofa/borðstofa: Stofan er með parketi á gólfi og timbur klæðningu í lofti. Hún rúmar vel borðstofu sem og ágæta setustofu.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott með hvítum skápum.
Svefnherbergi: Gott auka/svefnherbergi er með parkett á gólfi. Herbergið hefur inngang úr forstofu.
Baðherbergi: Er með hvítum flísum á gólfi og veggjum. Hvít innrétting með plastlagðri borðplötu úr viðarlíki. Sér sturtuklefi og sér baðkar.
Þvottahús og geymslubúr: Er innan eldhúss. Tengi fyrir þvottavél. Vaskur, innrétting og vinnuborð
Geymsla: Geymslan er á 1. hæð í aðliggjandi húsi nr. 7. Gengið er utanfrá inná geymsluganginn. Geymsluskúr: Á lóð við verönd er lítill geymsluskúr fyrir garðáhöld o.fl.
Bílskúr: Bílskúr er með hurðaopnara, heitu og köldu vatni.
Garður: Garður með timburverönd og skjólveggjum. Lóðin er með talsverðum trjágróðri og er fallega gróin.
Niðurlag: Þetta er fallegt og vel skipulagt hús sem hefur fengið andlitslyftingu og talsverða endurnýjun síðustu ár. Vinsæll staður í Garðabæ.
Allar nánari upplýsingar veitir Árni Ólafur Lárusson, s. 893 4416 og arnilar@fstorg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald vegna kaupsamnings er 0.8% en 0.4% við fyrstu kaup og 1,6 % ef lögaðili á í hlut, af fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald kr. 2.000.- kr. af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 65.000. - með vsk.