Lautasmári 28, 201

Fjarlægð/Seld - Eignin var 4 daga á skrá

Verð 74,9
Stærð 98
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 763
Skráð 27.1.2023
Fjarlægt 1.2.2023
Byggingarár 1998
mbl.is

***DOMUSNOVA KYNNIR * 4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Í LITLU FJÖLBÝLI***
Falleg og björt fjögurra herbergja endaíbúð á 2. hæð í snyrtilegu sex íbúða fjölbýli við Lautasmára 28 í Kópavogi.  Þrjú rúmgóð svefnherbergi með góðum skápum.  Þvottahús innan íbúðar.  Suðursvalir.  Stutt í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

Nánari lýsing:

Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur sem nær til lofts.
Hol rúmgott og parket á gólfi.
Eldhús með góðum borðkrók, vönduð innrétting sem nær til lofts með góðu skápaplássi, flísar milli  efri og neðri skápa, gluggi til suðurs, dúkur á gólfi. 
Stofa rúmgóð og björt með gluggum á tvær hliðar.  Útgengt á suðursvalir.  Parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með vönduðum skápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi # 1 með fataskáp sem nær til lofts, parket á gólfum. 
Svefnherbergi # 2 með fataskáp sem nær til lofts, parket á gólfum. 
Baðherbergi er með nýlegri vandaðri innréttingu, flísar á gólfi og veggjum.  Baðkar og sturtuklefi.  Opnanlegur gluggi á baði.
Þvottahús er innan íbúðar með hillum og nýlegum skáp. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla (9,8 fm) með hillum í kjallara.
Vönduð sameign með sameiginlegri hjólageymslu.
Mjög vel um gengin íbúð með dökkum innréttingum, skápum og hurðum.  Hurðir án þröskulda nema í votrýmum.

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27
Mynd 28
Mynd 29
Mynd 30
Mynd 31
Mynd 32
Mynd 33
Mynd 34
Mynd 35
Mynd 36
Mynd 37