Vinastræti 6, 210

Fjarlægð/Seld - Eignin var tekin út samdægurs

Verð 82,9
Stærð 236
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 351
Skráð 20.10.2022
Fjarlægt 21.10.2022
Byggingarár 2019
mbl.is

***ATH - LÆKKAÐ VERÐ***

Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg fjögurra herbergja endaíbúð með fallegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Vinastræti 6 í Garðabæ. Eignin er skráð 118,2 fm og skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús, rúmgott og bjart alrými með fallegu útsýni ásamt geymslu í kjallara. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara þar sem búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmangsbíla. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma: 767-0000 eða með tölvupósti: darri@fstorg.is.  


Nánari Lýsing:
Gengið er inn í forsofu með tvöföldum fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í sér þvottahús innan eignar með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergið er með flísar á gólfi og vegg við sturtu. Á baðherberginu er falleg hvít innrétting með handlaug og speglaskáp, upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Þrjú svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi og eru þau öll mjög rúmgóð og með fataskápum. Eldhúsið er í opnu og björtu rými með stofu og borðstofu. Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og viftu. Stofan og borðstofan er opin og björt með fallegu útsýni. Frá stofu er gengið út á 4,8 fm svalir vesturs með útsýni út á Bessastaði og Snæfellsjökul. Í kjallara hússins er 18,6 fm geymsla sem tilheyrir eigninni ásamt sérmerktu bílastæði í lokuðum og upphituðum bílakjallara. Búið er að gera ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem byggt var 2019 af ÞG VERK. Húsið er vel staðsett ofarlega í Urriðarholtinu í grend Urriðaholtsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Verslun og þjónusta, gofvöllur, útivistarsvæði í Heiðmörk og Vífilstaðavatn er í næsta nágranni. Einnig er í hverfinu veitinga– og kaffihús.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26