Jöfursbás 7b, 112
Fjarlægð/Seld - Eignin var 13 daga á skrá
Verð |
109,9
|
Stærð |
120
|
Tegund |
Fjölbýli |
Verð per fm |
913
|
Skráð |
1.3.2024 |
Fjarlægt |
15.3.2024 |
Byggingarár |
2023 |
mbl.is |
|
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir nýja íbúð sem er laus við kaupsamning við Jöfursbás 7B,Reykjavík .Íbúð 0401 er mjög rúmgóð 3,herbergja 120,4 m2 horníbúð á fjórðu hæð í lokuðu lyftufjölbýli, með stæði í bílageymslu og 25 m2 þaksvölum og einstöku sjávarútsýni. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 108,7 m2 auk 11,7 m2 geymslu í kjallara (merkt 0009) ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara merkt (merkt B026). Íbúðin er skemmtilega hönnuð með stóra stofu, stórt eldhús með úgengi út á stórar þaksvalir, baðherbergi og tvö rúmgóð svefnherbergi. Gólfhiti er í allri íbúðinni. Þaksvalir snúa í suður og vestur út frá eldhúsi. Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.Nánari lýsing .Forstofan rúmgóð með innbyggðum fataskáp
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts. Eyja í eldhúsi. Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE III með Quartz borðplötu.
Stofan er með góðum glugga og útgengt á svalir til suðurs og vesturs. Glæsilegt útsýni til sjávar.
Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og hluti veggja. Vönduð innrétting með Quartz borðplötu. Tengt fyrir þvottavél og þurrkara í lokaðri innréttingu.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott með góðum skápum sem ná til lofts.
Svefnherbergi (2) er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymslan er á sér geymslugangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni. Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is