Verð | 15,9 |
Stærð | 48 |
Tegund | Orlofs |
Verð per fm | 329 |
Skráð | 29.12.2015 |
Fjarlægt | 1.1.2020 |
Byggingarár | 2007 |
mbl.is |
Miðás, 301 Akranesi. Sumarhús í landi Kambhóls með glæsilegu úsýni. Hitaveita, heitur pottur.
Fasteignaland kynnir: Fallegt sumarhús við Miðás í landi Kambhóls, Hvalfjarðarsveit. Húsið er byggð árið 2007 og er skráð samkvæmt FMR 48,3 fm auk millilofts. Um er að ræða 4.600 fm leigulóð kjarri vaxin með glæsilegu útsýni inn á skipulögðu sumarhúsasvæði. Lokað svæði með rafmagnshliði.
Húsið skiptist í forstofu með flísum á gólfi. Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtuklefa og fallegri innréttingu. Eldhús með fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum. Stofan er með góðri lofhæð, parketi á gólfi og útgengi á sólpall.
Gott milliloft er í húsinu sem er ekki inn í skráðri stærð hússins. Af sólpalli er gengið inn í geymslu þar sem inntök hússins eru. Búið er að gróðursetja talsvert af trjáplöntum og má segja að lóðin sé fullfrágengin. Stór sólpallur með skjólgirðingu.
Möguleiki er að fá búslóð með í kaupum á eigninni.
Lóðarleiga er um kr. 95.000 á ári. Árgjald félag sumarhúsaeiganda er ca. kr. 6000 ári sem fer í viðhald á vegi og hliði.
Upplýsingar gefa:
Halldór Ingi Andrésson, löggiltur fasteignasali s. 897 4210 netfang: halldor@fasteignaland.is
Heimir Eðvarðsson, aðstoðarmaður fasteignasala s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is