Reykjastræti 7, 101

Verð 155,0
Stærð 263
Tegund Fjölbýli
Verð per fm 589
Skráð 26.4.2024
Fjarlægt
Byggingarár 2019
mbl.is 1256520

Betri Stofan og Jason Kristinn kynnir: 131,6 fm útsýnisíbúð á næst efstu hæð við Austurhöfn, sem er í hjarta miðbæjarins í Reykjavíkurhöfn.
Sérmerkt stæði í bílakjallara með grunntengingu fyrir hleðslustöð. Einstök íbúð á einstökum stað í næsta nágrenni við Hörpu.
Íbúðin er á fimmtu hæð og nýtur útsýnis til miðbæjar og fallegan inngarð Austurhafnar.

Fyrir framan íbúð er lokað rými sem nýtist sem aukaforstofa og er ekki í skráðum fm. Komið er inn í rúmgóða forstofu með miklu skápaplássi þaðan er gengið inn í alrými með stóru eldhúsi með eldunareyju. Útgengt er á tvennar svalir sem snúa í austur með útsýni til Hörpu og vestursvalir í inngarð. Baðherbergi með sturtu, baðkari og rými fyrir þvottavél og þurrkara. Svefnherbergi er rúmgott og er með fataherbergi, hægt að breyta í svefnherbergi. Sérsmíðaðar innréttingar með þykkari spón frá Gili Creations eru í eldhúsi, baðherbergjum og fataskápum. Kvarts borðplötur við eldhúsvask, en borð yfir eldhúseyju er klætt marmaraflísum. Afar vönduð tæki í eldhúsi frá Miele og Liebherr. Spansuðuhelluborð, vifta í helluborði, ofn, innbyggð uppþvottavél, ísskápur, frystir, vaskur og blöndunartæki. Snjallheimiliskerfi til að stýra lýsingu heimilisins, hitastigi, gluggatjöldum, sjónvarpi o.fl.

Íbúðin hefur aðgang að bílstæði í bílageymslu, merkt B85. Hægt er að aka í kjallarann frá höfninni einnig er hægt að keyra í bílageymslu úr innkeyrslu Hörpu og einnig frá Hafnartorgi.
Íbúðirnar eru vel staðsettar í nálægð við menningu, sögu, verslun og þjónustu.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.





Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Myndir

Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Mynd 9
Mynd 10
Mynd 11
Mynd 12
Mynd 13
Mynd 14
Mynd 15
Mynd 16
Mynd 17
Mynd 18
Mynd 19
Mynd 20
Mynd 21
Mynd 22
Mynd 23
Mynd 24
Mynd 25
Mynd 26
Mynd 27